miðvikudagur, nóvember 16, 2005

411.færsla.rien du rien.

Trúiði þessu? Það eru bara farnir að líða margir dagar á milli blogga hjá mér.

Skrópaði á mjög spennandi hátíðardagskrá í tilefni dags íslenskrar tungu. Ástæðan er einföld. Það átti að vera pöbbquis um íslenskt mál. Ég hefði orðið að taka þátt ef ég hefði mætt og ég hefði ekki höndlað það að vinna ekki keppnina. Það er allt í lagi, sjáðu til, að svara íþróttaspurningunum í trivial vitlaust, en þegar spurningarnar snúast um það sem maður er kominn með háskólagráðu í, þá hefur maður enga afsökun. Og þar sem ég æsist alltaf upp í öllum keppnum og verð rauð á hálsinum og byrja að öskra og hoppa, þá höndlaði ég bara ekki að taka áhættuna. Og svo var nottla líka americas next top model og so you think you can dance í sjónvarpinu. God ég ætla að giftast Artem. Haha á meðan mesta dramað var milli stelpnanna í ANTM tautaði Ása "þetta er bara eins og við stelpurnar!" og Gerður bætti við " nema við erum ekki módel":).

Já. Líf mitt er ekki spennandi um þessar mundir. Átaksnámskeið: þyngist bara. Skóli: með buxurnar á hælunum. Annað: ekkert.

Engin ummæli: