föstudagur, desember 30, 2005

434.færsla.næst síðasti dagur ársins

Ok. Er búin að vera hér á Hlöðunni í 46 mínútur. Það eina sem ég hef haft upp úr því er geipimikill fróðleikur um hár af vísindavefnum og ógleði eftir að hafa gleypt í mig heilt nizza með lakkrískurli. Miðað við tímann sem ég eyði í að lesa vísindavefinn ætti ég að vera orðin uppfull af tilgangslitlum fróðleik og þar af leiðandi orðin spurningaleikjasnillingur. En ó ekki. Öðru nær. Tók mér til skemmtunar spurningarnar sem voru notaðar til að velja þáttakendur í Meistarann og gat bara 27 af 50 réttar! En það er alveg eðlilegt því ég man ekkert stundinni lengur.

Eins og til dæmis í gær. Þá gleymdi ég að ég var búin að taka tappann af drykkjarjógúrtinni og hélt áfram að hrista hana. Áttaði mig ekki fyrr en hálf jógúrtin hafði myndað sundlaug í kjöltu minni. Varð því að fara heim af hlöðunni fyrir aldur fram vegna vemmilegrar jógúrt anganar sem loddi við mig jafnvel þó ég hefði farið hálf undir bununa í vasknum til að skola þetta úr. Það er ekki tekið út með sældinni að vera ég.

Á morgun eru áramótin. Ég á ekkert til að vera í. Ég á engan pening. Ég á engan göróttan drykk. Samt sem áður hef ég góða tilfinningu fyrir áramótunum. Held þetta verði gaman. Hef amk engu að tapa, fyrst ég á ekkert.

Engin ummæli: