437.færsla.Naktakommúnan
Með hliðsjón af tilvonandi sambýli okkar Aubbu fór ég að velta fyrir mér hinu flókna mynstri sambýlinga sem við vinkonurnar höfum myndað núna á síðustu árum. Innan vinkvennahópsins eru 10 jafngamlar stelpur. Þá er ég ekki að segja að við eigum ekki fleiri vinkonur en það má draga greinilega línu utan um þennan hóp. Við erum samsettar úr tveimur vinahópum úr grunnskóla, 5 stelpur úr grabbanum og 4 úr Kópavoginum + einn villuráfandi Breiðhyltingur.
Af þessum 10 stelpum hafa 7 okkar búið „saman“, það er með einhverri af hinum. Og þá verðum við að taka það með í reikninginn að ein okkar ætti eiginlega ekki að teljast með þar sem hún er búin að vera „gift“ lengur en elstu menn muna. Ef ég tek með tilvonandi sambúð okkar Aubbu þá höfum við þessar 7 búið saman í hvorki meira né minna en 7 sambýlingasamsetningum:
Spánn 2002: Sigga, Gebba, Aubba, ég
Ítalía 2004: Sigga, Ásta
Stúdó 2004: Þóra, ég
Þynnkukofinn2004-2005: Ásta, Ása
Stúdó í smá tíma 2005: Aubba, Þóra
Penthous-Palace 2005-?: Ása, Ásta, Gebba
101-Rvík 2006: Hlíbbið og Aubbið
Nokkuð gott, ekki satt?
Spurning um að við hættum bara þessu rugli og látum verða af því að kaupa saman eitt stórt einbýlishús. Naktahúsið. Og í stað þess að einhver svíki lit og hverfi á braut í eilífa sælu paraheimsins verður allir makar snarlega innviklaðir í naktaklúbbin og boðnir velkomnir sem nýjir sambóar. Þannig getum við lifað kommúnulífi með eilífum partýjum, eilífum flækjum og endalausu lífi. Alltaf einhver heima til að passa börnin, sem við munum vitaskuld hrúga niður í anda kommúnulífsins. Og þau munu alast sæl upp með 10 geðveikustu mömmum í heimi. Og ruglið mun halda áfram að eilífu. Lifi naktiklúbburinn! Lifi ruglið! Lifi kommúnan!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli