448.færsla.Meistarinn?
Í kvöld verður æsispennandi þáttur af Meistaranum.
Nei, ég er ekki skyggn, er bara búin að sjá þáttinn.
Því miður hef ég heyrt að lítið eða ekkert sjáist í áhorfendur í sal. Því er nú ver og miður, því annars gætu æstir áhangendur bloggsins barið bloggarann sjálfan augum, eldrauðan í framann, kreistandi hendur systur sinnar af spennu. Þó er ekki loku fyrir það skotið að þið gætuð heyrt mig góla einu sinni "Ááá, Anna, þú meiðir mig" þegar hún kreisti of fast hönd mína. Jæja.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli