449.færsla. Jess
Jess!!! Júhúúú. Djöfulli var hann góður! Hann vann! Vihíhí. Ég er búin að þurfa að halda þessu í mér í 3 vikur. Loksins get ég fagnað opinberlega. Jess. Hann vann.
Andskoti ánægð með þennan mág minn. Ekki nóg með það að hann veiði rjúpur í jólamatinn heldur vinnur hann spurningakeppni. Og það Stefán Pálsson sem hefur örugglega meiri reynslu af spurningakeppnum en nokkur annar á Íslandi. Þannig að: Vúhú. Djöfull vissi hann mikið. Maður þarf sem sagt ekki að vera með minnimáttarkennd þó hann vinni mann alltaf í Trivial:)
Jess.
P.S maður má alveg monta sig af einhverjum öðrum en sjálfum sér, er það ekki? Sjálfur er hann afskaplega hógvær.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli