laugardagur, janúar 28, 2006

450. færsla. súrmjólk í hádeginu

Þetta er kúl: Meistarinn "sannkallað gáfumenni":)

Súrmjólk með hunangi og rúsínum er nýjasta æðið hjá mér. Rosa gott. Samt má ekki vera of mikið hunang.

Jæja. Ég ætla að flytja hvað úr hverju. Það er bara svo erfitt að koma sér að því. Sérstaklega þegar faðir manns sem maður vill að hjálpi sér liggur uppi í rúmi eftir að hafa skemmt sér einkar vel á þorrablóti í gær.

Svei mér þá, mér sýnist á öllu að þetta verði djammfrí helgi. Enda er ég orðin gömul og þá hættir maður að djamma... GUÐ NEI! En já, flutningar og lærdómar hafa truflandi áhrif á djammið, því niður, eins og einhver sagði.

Svo má fólk fara að koma í heimsókn í litlu holuna mína. Hún hefur þann kost að maður getur legið í rúminu og teygt sig í allt, hehe, næstum því.

Engin ummæli: