mánudagur, janúar 30, 2006

451.færsla.

Það er eitthvað svo mikið að gera í lífinu núna. Maður er að flytja (ekki eins lítið mál og fólk gæti haldið), fara yfir verkefni, læra sjálfur, að prófa nýja vinnu og ég veit ekki hvað og hvað. Það er nú samt þannig að það er betra að hafa of mikið að gera heldur en of lítið. Þá fer maður bara að hangsa og sofa meira en góðu hófi gegnir.

Ég er óheppnari en margir aðrir, ég meina það. Lenti í þvi fátíða atviki að það var pissað á mig í leikhúsi um helgina. Já. Litli frændi minn sat í fanginu á mér, sofnaði og meig undir. Ekki málið get ég sagt ykkur. En blessuð börnin geta víst ekki gert að þessu.

En að öðru öllu skemmtilegra: Ég er að öllum líkindum (samt ekki víst) að fara í mæðgnaferð í sumarhús á Spáni í september. Líst mér massavel á það, örugglega mjög huggó. Auk þess getur mamma passað barnið á meðan ég og móðir þess förum á djammið:) Svo skreppur maður kannski aðeins til Madrííííþ... he. he.

Engin ummæli: