mánudagur, febrúar 06, 2006

452.færsla. Tremma í hel

Til hamingju Ísland með að Silvía fæddist hér!!!

Ég held geðveikt með Silvíu Nótt og ég viiiiiiiil að hún fari í Júróvisjón. Legg til að við förum öll saman í mótmælagöngu ef henni verður meinað að taka þátt fyrir hönd íslands. Ég elsk'ana. Hún á að fara.

Massa gaman í afmópartýinu hennar Aubbu sambó. Rífandi stemning. Fótbolti á ganginum, slagsmál, strippdans og typpateikninar á handleggi. Óli grís klikkar aldrei!

Ég hef stundum nefnt það hér á þessu bloggi að ég sé alls ekki viss um að ég stígi í vitið. Ljósaperuraunir mínar í 101 renna frekari stoðum undir þennan grun. Tvívegis hef ég gert tilraun til að kaupa ljósaperur í lampann minn. Í bæði skiptin kom ég heim með perur með vitlausum skrúfgangi. Núna á ég sem sagt 8 perur af mismunandi styrkleika og stærð en allar með sama skrúfgangi sem passar ekki í bölvaðan lampann. Í gær tók ég þó gleði mína um stund þegar ég fékk annan lampa sem vantaði peru í, með réttum skrúfgangi. Heldur tók þó gleðin að kárna þegar engin peranna virtist virka í lampanum. Var búin að prófa fimm mismunandi perur, bara ef ske kynni að ég hefði eyðilagt þær á leiðinni heim úr búðinni, þegar ég loksins fattaði að ég hafð gleymt að kveikja á rofanum á millistykkinu. Döhhh.

Engin ummæli: