589.færsla. Minna kókalele
Ég get sagt ykkur það að kæfu-jólaölsropi er viðbjóður. Mun verri heldur en hvítlauks-bjórropi, þótt hann sé nú slæmur.
en talandi um jólaöl. Litla frænka mín sem er ekki orðin tveggja ára drepur mig úr hlátri með fyndnum orðum. Jólaöl heitir kókalele hjá henni. Svo æpir hún minna kókalele sem þýðir meira jólaöl. Þetta er til vandræða, mér finnst hún svo fyndin að ég leggst á gólfið af magakrampa, ég hlæ svo mikið. Eins og þegar hún tók upp á því að segja fabbi í staðinn fyrir pabbi og Makka í staðinn fyrir Magga.
Annars var ég göbbuð í gær. Ég er eiginlega mjög móðguð yfir því. Svo er mál með vexti að einhver spanjóli (Peikó) laug því að mér að einhver annar spanjóli (Óskar) væri að fara að gifta sig. Svo kom sá síðarnefndi inn á msn og staðfesti söguna og bætti við fullt af smáatriðum.... og náttúrlega bauð mér í brúðkaupið. Ég lýg því ekki að ég hoppaði um alla íbúðina af gleði yfir því að hafa ástæðu til þess að fara til Madrídar. Langar þangað. Tala nú ekki um hvað það væri gaman að fara í brúðkaup þar. En svo var þetta bara lygi. Mátti svosem vita það... fannst allan tímann mjög undarlegt að HANN væri að fara að gifta sig.
Ljótt samt af svona spánverjum að plata saklausan útlending sem veit ekki að það var 1. apríl á Spáni í gær. Ég skal sko bara plata þá 1. apríl.
En talandi um brúðkaup. Mamm og pabb yfirgáfu vesalings mig og fóru út á land þar sem þau ætla að vera yfir áramótin. Það er nefninlega brúðkaup á morgun hjá frænda mínum. Ég gat ekki komið með því ég þarf að vera að LÆRA. Djöfs helv andsk skóli. Mikið er ég leið á þessu. En þrátt fyrir lærning og annan barning þá ætla ég sko að skemmta mér yfir áramótin, þó ég verði alein án fjölskyldunnar. Hver þarf á fjölskyldu að halda þegar hann hefur einn spánverja, einn ástrala, eina kanadíska og þrjá breska, + tvær af bestu vinkonunum til að fagna með?
Skrítið samt að vera ekki með fjölskyldunni um áramótin í fyrsta skipti ever. Hef ponsu áhyggjur af því að enginn syngi nú árið er liðið með mér.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli