þriðjudagur, júlí 15, 2003

Fimmta færsla. meira jamm

Sýndi ótrúlegt þolgæði og var á Celtic Cross ALLAN tímann niðri í bæ á laugardaginn. Fórum ekki fyrr en búið var að kveikja ljósin og allt það. Mér finnst alltaf gaman að fara á Celtic.... Og ekki spillti hljómsveitin þrísom fyrir með snilldartöktum.

Kom síðan því sem næst af stað fjöldaslagsmálum í röðinni fyrir utan Hlölla. Ég gerði þau mistök að pikka í öxlina á ungum manni sem var að troðast og segja honum að vera ekki að troðast. Það fannst honum barasta alls ekki sniðugt og varð síðan alveg snælduvitlaus þegar maður um fertugt sagðist halda að ungfrúin hafi verið næst (það er að segja ég).

Eyddi svo afgangi næturinnar í sérdeilis ánægjulegri manneskjuhrúgu heima hjá Ausu Klausu. Við sváfum fjögur uppi í rúmi hjá henni og nutum nærveru hvers annars:) Sumir hrutu þó full mikið. Og um morguninn ákvað rúmið að hrynja. En vale, no pasa nada.

Í gær fór ég svo heim til Ásu að spila.... það var mjög gaman. Reyndar vorum við svo þreyttar og sumum illt í maganum að við lögðum okkur allar saman. Það var mjög gaman.

Engin ummæli: