Sýnir færslur með efnisorðinu stelpurnar. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu stelpurnar. Sýna allar færslur

mánudagur, maí 18, 2009

911.færsla.Austurvöllur

Ætlaði að búa til sumarlega færslu með myndum sem ég tók í gær á símann minn. En ég kann ekki mikið að færa hluti úr símanum mínum í tölvuna. Sendi myndirnar sem tölvupóst, en það virðist hafa kostað skyldinginn því að inneignin mín kláraðist. Reyndi líka að nota bluetooth dót sem ég skil ekki hvað er, en tölvan mín virðist ekki vera með slíkt (þó að það sé svona mynd á tölvunni) og síminn vildi bara tengjast tölvu sessunautar míns. Hefði kannski átt að spyrja hann hvort að hann vildi taka við myndunum mínum og senda mér þær síðan, en ég kunni ekki við það af því að við tölum aldrei saman. Af því að maður má ekki tala saman í Gimli. Þess vegna þekki ég manninn ekkert sem situr við hliðina á mér, stundum allan daginn. Hins vegar gæti hann alveg ef hann vildi lesið það sem ég er að skrifa, svo ef sú er raunin, þá segi ég bara "Hæ!". En hérna, ég er gat bara flutt þrjár myndir úr símanum mínum yfir á tölvuna, svo að hér fáið þið þessar þrjár myndir. Þetta eru ekki endilega þær myndir sem ég hefði helst viljað sýna, heldur eru þetta þær myndir sem ég GET sýnt. Svona eins og þegar maður er að reyna að tjá sig á tungumáli sem maður kann ekki of vel. Þá segir maður oft bara það sem maður kann að segja, en ekki það sem mann langaði að segja.

Hér er Ása með mega eurovision/zoolander beibsvip:


Hér er ég eins og ég sé stutthærð. Ætti ég kannski að vera svona stutthærð í sumar? Skoðanakönnun!


Og hér er tilraun til að sýna mannfjöldann sem kom til að fagna JGJ (híhí, allir íslenskunemar fatta af hverju ég hlæ). En í staðinn sýnir þetta aðallega rafmagnskassa (hefði valið aðra mynd ef hún væri ekki föst inni í inneignarlausum síma). Alþingi er samt fallega geislum baðað. Við Ása vorum reyndar farnar áður en JG mætti en náðum þarna ljómandi huggulegri stund í sólinni með fullt af fólki og júrólögum:



Ég verð reyndar að segja að myndirnar ljómuðu meira og voru sumarlegri í símanum mínum. Á myndinni af mér þá virðist ég meira að segja vera alveg kappklædd, en staðreyndin var önnur.

þriðjudagur, febrúar 05, 2008

731.færsla. ó mæ lord

Á ég að segja ykkur....
Í gær setti ég inn Salamanca-færslu.... á bolludaginn.
Við Auður fluttum til Salamanca, einmitt á bolludaginn. Og ég gerði þetta án þess að vita það. Ég get hins vegar ekki sagt ykkur hvers vegna ég man að við fórum út á bolludegi.... fyrir 6 árum. Sjetturinn.is hvað það er langt síðan. Ekki furða að mér finnist ég stundum hafa verið ósköp lítil og vitlaus þegar ég var þarna... Ég var ósköp lítil og vitlaus! Æ samt finnst mér svo stutt síðan. Ég trúi bara ekki að maður gæti farið þangað í dag og rekist á sömu djammfélagana, á sömu stöðunum og fyrir 6 árum síðan. Mér fannst það nú nógu ótrúlegt þegar við rákumst á þá þegar ég bjó í Madríd og Aubb og Gebb komu í heimsókn og við fórum til SAla, fyrir 3 árum. Váts. Þrjú ár síðan ég fór til Madrídar. Og nú er Aubban á leið til Sala eftir nokkra daga. Við kíkjum sem sagt til Sala á þriggja ára fresti:)

Salastelpur: Spurning um að við plönum allsherjar endurferð til Sala 2011... þegar við verðum þrítugar (sjitturinn!)? Gætum jafnvel reynt að hafa uppi á gömlum félögum eins og Söru sænsku, Döru, Söndru eða einhverjum fleiri til að plata með.

Við hvern er ég alltaf að tala? Salafélagarnir eru ennþá í Kabúl, Kambódíu eða ekki að lesa bloggið...

mánudagur, febrúar 04, 2008

728. færsla. Þú veist þú hefur búið í Salamanca þegar...

Þetta er aðallega fyrir Sala-félagana mína. Reyndar er ekki víst að þær lesi þetta þar sem ein þeirra er í Tælandi, önnur í Afganistan og sú þriðja les ekki svo oft blogg, sýnist mér. En ég þekki a.m.k. þrjá aðra sem hafa verið í Sala svo þetta er líka fyrir þau:) (Stal þessu af grúppu á facebook)

1) Ir a la plaza mayor es una buena idea sea la hora que sea..
2) lo que hagas la noche anterior aparezca en una página web llamada salamancafiesta.com y que no recuerdes cuando ocurrio
3) conoces la ciudad por el nombre de los bares y no por el nombre de las calles
4) es normal ir a clase con una gran resaca...
5) te encuentras a tus profesores de fiesta
6) los camareros de los bares conocen tu nombre y saben tu bebida preferida.
7) la gente por la calle te saluda y te dice "menuda fiesta anoche" y tú no eres capaz de recordar " quién coño es" ni " qué coño hicistes la noche anterior"
8) has estado en una misma habitación con gente de 20 paises distintos
9) ir a clase es algo totalmente secundario
10) paseas por la ciudad con tu laptop buscando robar " wi-fi"
11) ir al rio es algo que haces todos los dias porque sabes que es el mejor sistema contra la resaca
12) pasas mas tiempo en el Irish Rover que en tu casa
13)sabes cuando sales de fiesta pero no cuando regresas a casa..
14) llegar a las 6am a casa es algo habitual y hacerlo mas temprano supone que tus amigos te llamen " aburrido"
15) dejas tus tareas hasta el último minuto posible de la fecha limite de entrega
16) estudiar en una cafetería es algo comun.. es incluso en medio de la plaza mayor
17) sales de fiesta y terminas con un montón de amigos de los cuales solo conoces el nombre del 25% del grupo.
18) conoces a la gente por universidades.. no por la persona
19) estas 6 meses aqui y no has logrado hablar ni una sola conversación con un español.
20) tú sabes quién es Fernando..
21) es fácil encontrar a David ( "el de medievo", ahora IRISH ROVER) dandote publicidad sobre alguna nueva fiesta loca que se inventó la noche anterior
22) descubres que en España hay ¡competiciones del Beer pong!
23) las fiestas de tu facultad duran 36 horas, borracho, sin dormir, con la misma camisa que dice lo que estudias y corres delante de un toro delante de tus compañeros de clase.
24)has estado 3 años estudiando aqui y no has visitado ningún monumento.
25)el último año de carrera algunos de tus profesores te preguntan si " eres nuevo"...
26) pasas más tiempo en la cafetería que en clase.
27) sales 4 veces por semana y te replanteas si vas por el camino correcto.
28) cualquier día de la semana es bueno para salir
29) sabes que el lunes encontraras tanta o mas gente borracha que un sábado.
30) cantar por la calle a las 5am está totalmente aceptado
31)estás sobrio la gente te mira mal...
32) sabes llegar a tu casa aunque tu nivel de alcohol en sagre es exagerado.
33) el desayuno es algo inexistente en tu dieta, pues acostumbras a levantarte a las 2pm.
34) descubres para que se utiliza realmente la siesta.
35) sabes donde están todas las máquinas de condones 24 horas abiertas.
36) ver un grupo de 40 americanos caminando juntos por la plaza mayor es totalmente normal.
37) sabes que la plaza mayor la limpian todos los dias por la noche, y sabes que ocurren cosas extrañas de vez en cuando en ella.
38) Te despiertas en una habitacion desconocida y no sabes quien esta a tu lado, te poner nerviosa buscando tu ropa e intentando saber que ocurrio anoche, hasta que te das cuenta que tienes una buena amiga que te cedio parte de su cama.
39) sabes como entrar a la chupiteria pero nunca como salir
40) Nunca en tu vida te tomastes un juego de trivial ( Quiz) tan enserio como los del Irish Rover
41) En Leonardo's te conocen por tu nombre e incluso son tus amigos
42) Has bailado alguna vez en los altavoces de Camelot
43) conoces el verdadero significado de una barra libre por 4 €
44)Te prometes que volverás a Salamanca alguna vez en tu vida!+


Feitaði það sem mér fannst eiga extra vel við haha.

3) Ég man ennþá hvað allir barirnir hétu... en man ekki hvað neinar götur hétu, nema náttúrlega Gran Via og Campoamor:)

4) Ég minni á fyrsta skóladaginn okkar Gerðar þar sem klukkutíma fyrir tíma sátu 2 barþjónar af Irish í stofunni okkar og drukku vodka, og vöktu Gerði sem hafði komið heim af djamminu hálftíma áður... ég nokkrum tímum fyrr.

6) (sjá komment hér á undan) ég er samt ekki svo viss um að þeir hafi vitað hvað við hétum... en þeir voru allir vinir okkar:)

7) Hversu oft hitti maður ekki einhvern sem vissi furðulegustu hluti um mann þó maður kannaðist ekkert við viðkomandi... þangað til maður framkallaði filmuna sína og sá að fyrsta kvöldið í bænum hafði maður kynnst flestum þeirra.

14) Nefni aftur til vitnis kvöldið fyrir fyrsta skóladaginn okkar Gebbu, þar sem ég fór snemma heim (kl. 4) og þótti frekar mikill fýlurass að fara heim áður en Irish lokaði!!

15) Muniði þegar Sigrún fór í próf og átti að skila tveimur ritgerðum sama dag, sem hún var ekki byrjuð á... og við vorum búnar að panta bílaleigubíl til að fara í ródtripp sama dag. Eins gott að læknanemi nr. 1 skyldi gera aðra ritgerðina fyrir hana:)

21) Ég er ekki að grínast en þessi David er David sem við þekktum, as in Jorge og David. Ó mæ lord, Auður, þú átt örugglega eftir að rekast á hann á Irish þegar þú ferð þangað.

27) Ja, reglan hjá okkur var reyndar 3 í viku... en maður bætti nú oft við einum þriðjudegi, eða fimmtudegi... eða mánudegi... eða...

30) "Augun mííín og augun þííín"

31) Ja, eða trúir því einfaldlega ekki að maður sé virkilega edrú

þriðjudagur, október 16, 2007

687.færsla. Bloggverðlaunin 2007

Hér á bloggi mínu er hafin æsispennandi keppni: Hver er bestur að blogga!! !! !!

Það skal tekið fram að þetta er ekki mjög lýsandi nafn þar sem ekki er lagt mat á gæði eða fagurfræði bloggfærslanna sem slíkra heldur einblínt á magn í formi fjölda færslna. Hávísandalegum aðferðum var beitt í úrvinnslu úrslitanna, þ.e. ég taldi færslurnar (er með talnablindu) á árinu.

Veitt eru verðlaun í hverjum flokki fyrir sig
(verðlaunin hafa ekki verið ákveðin) og verða úrslit kynnt daglega næstu daga.

Fyrsti flokkurinn sem keppir er .... MIS CHICAS!!! Bjóðið þær velkomnar. Klapp klapp, klapp klapp.

Umsögn um keppendurna: Í þessum flokki getur að líta mjög breiðan hóp bloggara hvað varðar fjölda bloggfærslna. Segja má að hér mætist þeir bestu og þeir verstu. En við skulum ekki fjölyrða um þetta heldur vinda okkur beint í úrslitin:

Drrurururururururuurururuuru [trommusóló]


Íííí þriðja sæti eeer engin önnur eeeeen listfræðineminn og baunin með meiru: Ásta Þ. G.
Vúhú. Klöppum fyrir henni. Glæsilegur árangur: 90 færslur á árinu.

Ííííí öðru sæti eeer engin önnur eeeeeen málfræðineminn og bloggarinn sjálur: Ég.
Með 92 færslur á árinu. Mjótt á mununum milli 2. og 3. sætis þarna.
....
....
Afsakið. Það hefur borist kvörtun frá umsjónarmönnum keppninnar. UUU. Það lítur út fyrir að samkvæmt reglum megi dómarinn ekki vera sjálfur hluti af keppninni. U. Nei, annars, þetta er einhver misskilningur. Þar sem ég er einvaldur þessarar keppni þá hef ég dæmt mér annað sætið. Jú. Það þýðir ekki að deila við dómarann.

Þá er komið að fyrsa sætinu. DRRURURURURUURURRU [hátt trommusóló]
SIGURVEGARI Í FLOKKNUM MIS CHICAS ER ENGIN ÖNNUR EEEEN:
Auður Ö. Ó.
Með hvorki meira né minna en 168 færslur. Ótvíræður sigurvegari. Glæsilegt. Gefum henni gott klapp. Það verður gaman að fylgjast með henni þegar keppnin heldur áfram og sjá hvernig hún stendur sig í samanburði við þá bestu í hinum flokkunum. Frábær árangur hjá henni.

Önnur úrslit:
4. sæti:
Þóra B S með 31 færslu

5. sæti: Ása B með 21 færslu

6. sæti: Árný með 13 færslur

7. sæti: Erla M D með 10 færslur
frá 14. ágúst... dómarinn gat ekki séð lengra aftur, sem gerir það í raun og veru að verkum að ekki var hægt að dæma frammistöðu hennar. Hugsanlega hefði hún getað komist nálægt verðlaunasætunum...

8. sæti: Gerður B K S með 1 færslu .... lélegt (ekki voru færslur á leynibloggum taldar)

Og botninn vermir :

9. sæti: Sigga P með 0 færslur. Hræðileg frammistaða.

Til hamingju með úrslitin.
Bíðið spennt eftir úrslitum í öðrum flokkum.

laugardagur, apríl 14, 2007

621.færsla.tælenskt fuglabjarg

Naktiklúbburinn hittist næstum eins og hann leggur sig í gær. Vantaði bara Noregsbúann, en í skaðabætur mættu fullt af hálfnöktum konum eins og Árný sem er heimt úr helju (komin heim frá Argentínu), Júdith og fleiri góðar. Það var massagaman. Ég hélt ég myndi míga á mig þegar stelpurnar byrjuðu að leika "Stellu" ekki af því að þær væru svo fyndnar heldur af því að þær hlógu svo mikið:)

OK. Ég veit að við erum kannski ekki lágværustu stelpur í heimi...og við vorum alveg 10+ (erfitt að telja, það var alltaf að bætast í hópinn) en ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið þegar gamall gráhærður kall stóð upp, gekk upp að borðinu okkar og jós yfir okkur skömmunum fyrir að vera svona háværar. Sagði að við værum eins og fuglabjarg (skil það) og líkti okkur svo við tælenskar konur (!?). Ég hélt að ef það væri einhver staður sem maður mætti vera hávær á þá væri það á skemmtistað á föstudagskvöldi. Og hvers eiga tælenskar konur að gjalda, eru þær svona háværar??? Allar tælenskar konur sem ég hef kynnst hafa einmitt verið frekar lágværar og fyrirferðalitlar:) Enda stóð ekki á svörunum úr okkar hópi: Gebba: "Ertu í Frjálslyndaflokknum, eða?"- "Fáðu þér bara bjór". Auður: "Þú ert bara gamall karl":)

Það var huggun harmi gegn að kona á næsta borði skyldi halla sér að okkur og segja okkur að við mættum alveg tala....

Fjuss. Ég verð bara reið yfir svona karlfauskum... ósvífnin. Fjuss. Tala bara eins hátt og mér sýnist. Játs maður.

sunnudagur, júlí 20, 2003

Níunda færsla. svangur

Eyddi aftur heilu kvöldi á Celtic... ansi gott úthald! Hitti þar gamla vinnufélaga á vinnudjammi, sem var svoldið fyndið því ég var m.a. að djamma með núverandi vinnufélögum. Varð síðan vitni að mjög athyglisverðu samtali á milli Ásu og einhvers íra. Einhverrra hluta vegna voru þau í svolitlum söngleikjafíling og brustu alltaf í söng öðru hvoru.....mjöög skemmtilegt á að horfa. Ég skildi samt ekkert sem maðurinn sagði. Erum víst að fara að hitta hann í kvöld, hahahaha. Svo kýldi ég Óskar en sem betur fer reyndi Ása að kveikja í honum rétt á eftir þannig að höggið mitt féll alveg í skuggann. Ég er reyndar mjög hissa á að hafa komist heim heil á húfi því leigubílstjórinn var í krampa alla leiðina heim. Hláturskrampa sko, af völdum Ásu sem lýsti kvöldinu á mjög skondinn hátt við taktfastan undirleik hiksta. Leigubílstjórinn sagði að stundum vildi hann óska að hann hefði falda myndavél í bílnum.

Eyddi öllum mínum peningum á fimmtudaginn (var sko í fríi, maður verður nú að nýta frídaginn sinn veeeel) Andskotinn, það er verið að slá fyrir utan, hnerr, HNERR. Fór í klippingu (er samt óánægð) fékk mér linsur, sem ollu því reyndar að ég fékk vægt taugaáfall í gær þegar ég reyndi að setja þær í mig án hjálpar sjóntækjafræðings, var svolítið tímabundinn og það tók mig tuttugu fjandans mínútur að setja þær í. Svo keypti ég mér bikiní (reyndar svolítið lítið.... alltaf erfitt að fá réttu númerin á útsölum), skó, sokka (reyndar ónýtir eftir kvöldið í gær), garn (er að hekla tösku, hún verður geðveikt flott) og nærföt og augnskugga. J'aime la útsala. Rennur stundum á mig æði á útsölum, einu sinni skrópaði ég í skólanum og þurfti að hringja í yfirdráttinn(öðru nafni bankann) og fá 20000kr hækkkun.

Ég er að drepast úr hungri........... langar í eitthvað gott..... quiero banana,ahh:)

þriðjudagur, júlí 15, 2003

Fimmta færsla. meira jamm

Sýndi ótrúlegt þolgæði og var á Celtic Cross ALLAN tímann niðri í bæ á laugardaginn. Fórum ekki fyrr en búið var að kveikja ljósin og allt það. Mér finnst alltaf gaman að fara á Celtic.... Og ekki spillti hljómsveitin þrísom fyrir með snilldartöktum.

Kom síðan því sem næst af stað fjöldaslagsmálum í röðinni fyrir utan Hlölla. Ég gerði þau mistök að pikka í öxlina á ungum manni sem var að troðast og segja honum að vera ekki að troðast. Það fannst honum barasta alls ekki sniðugt og varð síðan alveg snælduvitlaus þegar maður um fertugt sagðist halda að ungfrúin hafi verið næst (það er að segja ég).

Eyddi svo afgangi næturinnar í sérdeilis ánægjulegri manneskjuhrúgu heima hjá Ausu Klausu. Við sváfum fjögur uppi í rúmi hjá henni og nutum nærveru hvers annars:) Sumir hrutu þó full mikið. Og um morguninn ákvað rúmið að hrynja. En vale, no pasa nada.

Í gær fór ég svo heim til Ásu að spila.... það var mjög gaman. Reyndar vorum við svo þreyttar og sumum illt í maganum að við lögðum okkur allar saman. Það var mjög gaman.

laugardagur, júlí 12, 2003

Fjórða færsla. Og veröldin snýst í hringi

Ég er svolítið þunn núna. Bróðir minn var að halda upp á afmælið sitt í gær, hann varð eldgamall...30 ára! Og þetta er yngsti bróðir minn, spáið í því! Hann hélt partý og það var bara ansi gaman. Alls konar fólk, til dæmis vinir okkar allra systkinanna þannig að þeir elstu (fyrir utan múttu) voru rúmlega fertugir og þeir yngstu jafngamlir mér. Svo var þarna frægt fólk, Sigur rós:)

Þrátt fyrir áköf mótmæli mín fórum við Litli Björn og Stóri Björn og Snóra á ofurbúlluna Victor. Hápunktur kvöldsins var held ég þegar við Ausa vorum í svaka sveiflu á dansgólfin en eitthvað varð sveiflan of kröftug og ég fleytti kerlingar á gólfinu. Svo held ég svei mér þá að einhver kona hafi verið að reyna við mig! Detti mér allar dauðar lýs úr höfði, ha. Hún fann alla vega hjá sér þörf til að segja mér hvað henni þætti ég falleg. En það er náttúrulega ekkert skrítið;)

Vesalings móðir mín fór fremur snemma heim úr partýinu af því að hún var orðin svo þreytt. Þegar heim var komið læstist hún úti þegar hún fór út að reykja! Því miður var hún bara á náttfötunum og í inniskóm. Mamma greyið var ekki með síma og enginn átti leið framhjá sem hún gat fengið að hringja hjá og Það var mjög kalt, svona ef maður er bara á náttfötunum. Loksins fann hún eldgamla og drulluga flíspeysu uppi á svölum sem hafði verið notuð til að breiða yfir eitthvað dót og einmana handklæði á svölunum. þessu klæddist hún og vafði handklæðinu um hálsinn. Svo settist hún í þessari útigangs-múnderingu út í kofa og starði geðveikislega út um gluggann í þeirri von að eitthvert okkar kæmi nú heim! Ef einhver hefði séð hana svona hefði hann örugglega verið fljótur að hringja á lögguna.

Mér finnst rosalega gaman að vera í tölvunni núna. Ég er nebbla búin að líma límmiða af Bisbal ( mi amor, mi vida, mi corazón latino) á tölvuna. Fallegt. Ekkert smá.

Jidúdda. Og svo er annað parý í kvöld. Jibbí:)