Sýnir færslur með efnisorðinu mígreni. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu mígreni. Sýna allar færslur

sunnudagur, febrúar 14, 2010

936.færsla.Lengd

Vissuð þið að á kortavefnum á ja.is er mælistika sem maður getur t.d. notað til að mæla hvað göngutúrinn manns var langur? (Þetta er sjálfsagt hægt að gera á ýmsum stöðum á netinu, án þess að ég viti.)

Samkvæmt þessu var göngutúr dagsins rétt tæpir 4 km. Sem ég er bara nokkuð ánægð með. Svoltið gaman að vita hvað maður gekk langt. Þegar ég fer í göngutúr þá þvælist ég nefnilega bara eitthvað um götur, þangað sem hugurinn ber mig. Fer kannski í hringi og krókaleiðir, í stað þess að hafa einhvern endapunkt í huga.

Æ bla.

Vona að mígrenið í gær hafi bara verið stakt, en ekki fyrsti hlutinn af sígreni.

fimmtudagur, maí 07, 2009

905.færsla. Brandari

Bjó áðan til rosalega góðan brandara.

Hvaða grenitré finnst mér ljótast?

Hmmmm

...
...
...

Mí-greni!

hahahahahahahah

miðvikudagur, janúar 21, 2009

870. færsla. ekki fordæma:)

Ég ætla að skrifa pirringsfærslu. Þið þurfið ekki að lesa þetta frekar en að þið viljið. Auk þess er ég með mígreni og ætla því að skrifa stutt [innsk. tókst ekki]. Djöfulsins helvítins andskotans helvíti mígreni.

Núna ætla ég að leyfa mér að vera pirruð út í feisbúkk grúppu sem heitir "fordæmum mótmælendur sem beita ofbeldi og óhefðbundnum aðgerðum".

Í fyrsta lagi verð ég svo sorgmædd þegar fólk sér sig knúið til þess að fordæma mótmælendur eins og staðan er í dag. Hvernig er hægt annað en að mótmæla ástandinu og því að fólkið sem leyfði þessu að gerast sitji áfram við stjórnvölin? Það er algjörleg óásættanlegt. Þeir sem eru í þessari grúppu eru sjálfsagt ekki að fordæma alla mótmælendur, heldur bara þá sem beita ofbeldi og óhefðbundum aðgerðum, en með því að gera það finnst mér það vera að fordæma alla mótmælendur. Við erum öll þátttakendur í þessum mótmælum og það er erfitt að aðskilja þessa þrjá (eða eitthvað) sem hafa kastað steinum (eða eitthvað) og öll hin þúsundin sem eru friðsamleg.

Í öðru lagi þá átta ég mig ekki alveg á því hverjir hafa verið að beita ofbeldi. Öll þau mótmæli sem hef mætt á hafa verið afskaplega friðsamleg. Ég veit samt að það hefur soðið upp úr, en mér finnst það ekki skrítið. Einhverjar erjur milli áköfustu mótmælendanna og lögreglu finnst mér ekki beint vera hægt að flokka sem að mótmælendur séu að beita ofbeldi! Og hvers konar mótmæli eru það ef fólk stendur ekki fast á sínu!ARg. Hópurinn fordæmir líka það að það sé verið að skemma hluti. Þetta blessaða kryddsíldardæmi virðist snúast um eina snúru, og í gær var víst EIN RÚÐA brotin. Ég tel matarskvettur EKKI MEÐ SEM SKEMMDARVERK, kommon, það er mjög auðvelt að þrífa það. Ekki misskilja mig, ég er alls ekki hlynnt því að fólk sé að kasta grjóti og ég vil hafa mótmælin friðsamleg. Hins vegar skil ég mjög vel að fólk geri eitthvað svona. Mér finnst ekkert af þessu alvarlegt, og mjög langt því frá að vera svo alvarlegt að ég trúi því að fólk vilji hópa sig saman til að fordæma þetta.
Í gær, á meðan ég var niðri á Austurvelli, sem var nú svosem ekki lengi, þá gerðu mótmælendur þetta: höfðu bál. Trommuðu á trommur og hvað sem býr til hljóð og sungu. Vá: ógnandi. Það eina sem var skemmt var það eina sem bókstaflega enginn tapaði á því að væri skemmt, þ.e.a.s. Oslóartréð. Ég sé ekki hvað var svakalegt við bálið á meðan það fór ekki úr böndunum.


Í þriðja lagi: af hverju að fordæma fólk sem beitir óhefðbundum aðferðum við mótmæli? Skil það ekki alveg.

Í fjórða lagi er ég alveg ótrúlega hissa á því hvað mótmælendur hafa verið rólegir. Í stórum hópi þar sem fólk er reitt þarf ekki mikið til þess að hópurinn tryllist. Það hefur ekki gerst, þrátt fyrir að það hafi gefist tilefni til þess. Til dæmis þegar lögreglan beitir kylfum svo fólk er með blæðandi sár. Þegar piparúða er sprautað beint framan í friðsama mótmælendur og ljósmyndara. Þegar börn eru handtekin og foreldrarnir fá ekkert að vita um þau. Æ, þegar löggan þrengir að mótmælendum, skref fyrir skref, þrátt fyrir að engin ástæða hafi virst vera til þess. Það er mjög ögrandi.

Ég veit ekki hvort ég næ að koma því á framfæri sem ég er að hugsa. Ég vil heldur ekki ofbeldi eða eignatjón, en það hefur bara verið svo lítið að það er ekki tilefni til þess að fordæma mótmælendur. Og með því að gera það skipar fólk sér í "hitt liðið".

[Uppfærsla: Kannski hljóp ég aðeins á mig með þessari færslu. Fólk má vera á móti ofbeli. Mér finnst bara mótmælendur ekki beint hafa verið ofbeldisfullir. Og mér finnst við virkilega EIGA að mótmæla.]

mánudagur, nóvember 24, 2008

858.djöfs

við Anton ákváðum um daginn að það gengi ekki að ég væri jákvæð á blogginu. Þetta er mikilvæg leið fyrir mig að losna við pirr og pirr. Ef ég stífla þessa leið þá brýst þetta bara út á einhvern annan hátt og það er ekki gott. þannig að nú segi ég djöfs helv andssk

Nú ætla ég að kvarta undan helv djöfs andsk mígreninu. Mér er farið að líða eins og ég ætti að vera á örorkubótum. Er búin að vera frá ansi marga daga núna upp á síðkastið. Ég get ekkert gert af viti þegar þetta er svona. Það mynduð þið ekki heldur geta ef þið hefðuð dansandi eldhnött fastan í auganu á ykkur og fengjuð um leið málstol. Fyrir utan skemmtileg einkenni eins og dúndrandi höfuðverk og ástæðulausan náladoða í annarri hendi, öðrum fæti og hálfu andlitinu (þar með talið hálfri vör, hálfri tungu og jafnvel niður í kok). Og þar að auki fara tilfinningarnar í klessu og ég verð álíka viðkvæm og postulínsdúkka. Þetta er óþolandi andskoti. Vonandi kemst ég til læknis fljótlega.

Hef stundum furðað mig á því að það skuli ekki fyrir löngu verið búin að finnast lækning á þessu í eitt skipti fyrir öll, því að svona fáránlega sérstök einkenni hljóta að geta gefið vísbendingar um hvað er á seyði. En svo fattaði ég ... mígreni er aðallega kvennasjúkdómur ....

En samt, ef maður leitar á netinu þá virðist nú heilmargt vera í gangi. Eiginlega of margt. Nokkrar matartegundir sem geta valdið mígreni:

alkohól
ostar
msg
unnar kjötvörur
aspartame
súkkulaði
mjólkurvörur
jarðhnetur
hveiti
sítursávextir
laukur
sýrður matur

þetta er bara smá af því sem ég hef séð. Ég kann bara ekki að forðast allan þennan mat... Og á hverjum degi borða ég liggur við allt þetta svo það er helv erfitt að finna út hvort eitthvað af þessu er sökudólgurinn.

Og þar fyrir utan getur þetta valdið mígreni:
sólarljós
lykt og ilmvötn
sígarettureykur
að sofa of mikið
að sofa of lítið
stress
blæðingar

Mér finnst þetta með litla og mikla svefninn svolítið fyndið... en jújú, ég get svosem alveg trúað því að reglulegur svefn hafi eitthvað með þetta að gera. Blæðingar er erfitt að forðast (nema maður verði bara óléttur sem ku vera besta meðal gegn mígreni, a.m.k. samkvæmt múttu), sem og alla lykt og sólarljós. Haha. Vampíra.

En jæja. Svo getur maður tekið magnesíum, B2, lýsi, hrossafífil, glitbrá og Q10.
Verst að ég hef ekki hugmynd um hvað þetta er sumt af þessu.
Yfir og út.

Vildi bara koma því á framfæri að ég er ósátt við þetta.

Já og ég verð að bæta við að svo hjálpar víst bótox sumum. Hahahahahahaha. Heppilegt

laugardagur, desember 22, 2007

713. færsla. jólastress, loftin fyllir

Today was dramatic, now is OK.

Er ekki betra að lenda í dramstresskasti dauðans daginn fyrir Þoddlák, heldur en á Þoddlák sjálfan, ja eða barasta aðfangadag? Jú, svei mér alla daga. Ég ætla bara að vera ánægð með dramastresskastið sem ég fékk í dag, fyrst það var svo almennilegt að koma á svona góðum tíma.

Stresskastið orsakaðist af: þynnku, vakna með mígreni, eiga eftir að þrífa eitt heimili og skreyta, skreyta annað og hjálpa til á því þriðja.

Ég verð að segja að það er mjög svo óökonómískt að eiga heima á tveimur stöðum í einu, ef maður þarf [lesist: VILL] skreyta þá báða, sérstaklega í ljósi þess að ég ætla líklegast aðallega að vera á heimili foreldra minna, sem er einmitt þriðja heimilið sem ég ætla að skreyta. En svo hringdi ég heim og pabbi sagði að allt væri samkvæmt áætlun og mamma sagði að það væri alveg nóg að ég kæmi þangað á morgun til að skreyta. Og í raun og vera ætti ég alls ekkert að vera stressuð þar sem ég er búin að kaupa allar jólagjafir og pakka þeim inn, búin að senda jólakort (hef samt örugglega gleymt að senda einhverjum...úbss), þarf ekki að skrifa ritgerð um jólin (nema náttlega ma-ritgerðina) og það er ekki einu sinni þorláksmessa. Og nú á ég bara eftiir að skreyta litla herbergið mitt á Tjarnargötunni og það getur ekki tekið langan tíma þar sem það er bara 6 fermetrar. Þannig að oftustresskastið held ég að hafi bara orsakast af mígreni-þynnkukokteilnum. En það góða er að mígrenitöflurnar sem læknirinn lét mig hafa í fyrradag virðast virka vel á mig.


Já. Þetta er allt ljómandi. Ljómandi jólaljós. Ljósadýrð loftin fyllir.

sunnudagur, nóvember 11, 2007

698. færsla

Þá vitum við það ... nördaumræður og hljóðfræði er greinilega vinsælt í dag. Er enn að reyna að átta mig á því af hverju ÞETTA fékk 50 komment ... en hef ekki komist að neinni niðurstöðu.

En nú ætla ég að skrifa ógeðslega leiðinlega færslu hér með fréttum af mér. Þetta verður samt að vera stutt af því að ég vil ekki sitja lengi fyrir framan tölvuna. Ég er nefninlega búin að fá svívirðilega mikið af mígreniköstum síðustu vikuna eða svo. Hef eiginlega verið í einu stóru mígrenikasti allan tímann. Og það sökkar svoooo mikið. Hef aldrei lent í neinu í líkingu við þetta, hef alltaf bara fengið eitt og eitt kast nokkrum sinnum á ári. Ég rétt gat klárað að fara yfir verkefnin fyrir aðstoðarkennsluna á milli kasta, en hef næstum því ekki neitt getað unnið í mínum eigin verkefnum. Sem náttúrulega gerir mig óánægða og stressaða, sem getur aukið á mígreni! Sökkar!

En jæja. Ég er hætt í bili. Best að reyna að gera eitthvað smá fyrir skólann.

þriðjudagur, febrúar 13, 2007

601.færsla. ull - bull

Hápunktur gærdagsins var þegar ég ullaði á ungling.

Næstum eins hressandi og þegar ég gerði fokkmerki tvisvar sama daginn. Það var fyrir 5 árum.

Núna er ég búin að fá nokkur mígreniköst á nokkrum dögum og held ég sé búin að komast að þeirri niðurstöðu að mígreni ráðist á þær málstöðvar sem geymi ensku í heilanum á mér. Amk. er ég búin að gera fáránlegar villur á msn.

PLííís viljiði koma með hugmyndir að grímubúning fyrir föstudaginn. Hann verður að vera: a) ógjó töff
b) ógjó frumlegur
c) ógjó töff