sunnudagur, júlí 20, 2003

Tíunda færsla. but you are so young

Einhver enskumælandi kona kom til mín í gær og spurði hvort ég vissi með hverjum lagið væri sem trúbadorinn á Celtic var að spila. Þetta var Creep og ég sagði henni að það væri með Radiohead. Konan dáðist mikið af gáfum mínum að vita þetta. Svo þegar við vorum að fara greip hún í höndina á mér og sagði mér að ég mætti ekki fara strax (það var búið að loka og kveikja ljósin). Tilvitnun "You know all the songs, it was so great watching you... and you are so young!!! But you were even singing Hootie!!"

Engin ummæli: