þriðjudagur, janúar 09, 2007

595.færsla. klént.is

Jæja. Þá er haustönn lokið. Loksins búin að skila öllu. Þema lokaverkefnanna var klént. Get ekki sagt að ég sé ánægð með það sem ég skilaði, en ég er mjög ánægð með að vera búin.

Þá er bara að lesa yfir BA-rnið hennar Ásu og undirbúa mig fyrir tímann á morgun sem kennslukona. Það, get ég sagt ykkur, er bæði erfiðara og auðveldara en maður hefði trúað. Sjálf kennslustundin er auðveldari en ég hélt, en hins vegar er miklu erfiðara að undirbúa tímann. Ég meina... ég þarf að geta talað í 40 mínútur. Hins vegar er unaðslegt að ganga um ganga gamla skóla. Og vægast sagt undarlegt að sitja við kennaraborðið... að ég tali nú ekki um að fara inn á kaffistofuna.
Ah. ætlaði ekki að blogga um þetta. En þetta er bara í afleysingum. Ótrúlega skondið samt.

Jæja. Best að láta hendur standa fram úr ermum.

P.S ég mun bara blogga lítið og leiðinlega á næstunni.

Engin ummæli: