mánudagur, febrúar 12, 2007

600.færsla. Úrslit

Sex hundruð. Ekki slæmt.

OK. Hér eru úrslitin í undankeppninni í Júróvisjón ef ég fengi að ráða:

1. Þú tryllir mig!!! vinnur með yfirburðum. Aðeins að pimpa það upp og þá verður það brilliant.
2. Ég og heilinn minn - Skemmtilegt lag
3. Eiríkur Hauksson - halló, en næstum því kúl
4. Jónsi - nokkuð góður kraftur í þessu en anski klént lag
5. Blómabörn - Ef hún getur reynt að hitta betur á háu nóturnar. ágætt viðlag
6. Bjarta brosið - Slappt, júróvisjón týpískt en nokkuð grípandi viðlag
7. Húsin hafa augu - þetta lag er í áttina að því að hafa laglínu, en nær því ekki alveg.
8. Friðrik Ómar - Grétar Örvarsson hefur greinlega lítið þróast síðustu áratugina... og Friðrik Ómar: god þú varst svo hallærislega tapsár í fyrra. sorrý
9. Áfram - Eiginlega bara slæmt. Daðrar við það að vera skemmtilega halló en nær því ekki og er bara halló.

Ok. Mér finnst eiginlega bara efstu tvö lögin eiga það skilið að vera í þessari keppni. Til og með fimm sleppa svo sem næstum því, en þar fyrir neðan eru bara léleg lög.

Þið megið endilega tjá ykkur um málið í kommentum:)

Engin ummæli: