laugardagur, febrúar 17, 2007

602.færsla.júró + grímó

Ekki það að ég sé eitthvað að monta mig... en ÉG VANN !
Það borgaði sig að mæta eins og rúllupylsa, íklædd engu nema hvítu næloni með bleikt tjull um mig miðja. Set kannski inn myndir við tækifæri.

Annars er náttúrulega júróvisjón í kvöld og vil ég hvetja alla til að kjósa rétt. Þ.e.a.s hann Hafstein og þú tryllir mig. Eins og allir geta séð og heyrt er þetta augljóslega besta lagið í þessari keppni. Ekki spurning og ég er sannfærð um að þetta lag muni komast langt í keppninni úti.... en kannski hæpið að það komist fram hjá íslenskum miðaldra kellingum sem myndu helst af öllu vilja sjá Regínuósk og FrÓmar syngja hressan ástardúett eftir Grétar Örvars með brosmildar meyjar dansandi riverdans í bakgrunni...

OK. Ég þjáist af mikilli resaca og get hvorki hugsað skýrt né skrifað núna. Gleðilega hátíð

Engin ummæli: