609.færsla. Sérstakir hæfileikar
Já. Ég er dugleg að gera hluti sem eru ótrúlegir.
Í dag var ég að labba niður stigann í Árnagarði. Skyndilega missti ég algjörlega fótanna, hrundi niður, lenti á virðulegum eldri karlmanni sem var á uppleið með kaffibolla og kex, svo brennandi heitt kaffið skvettist allt yfir hann og kexið molnaði í mél á gólfinu. Þetta gerði ég vitaskuld með tilheyrandi góli, og auðvitað þarf ekki að taka það fram að öll neðsta hæðin í Árnagarði varð vitni að þessu, þar á meðal hluti af stjórn nemendafélagsins sem sat þarna og seldi miða á árshátíðina. Þeim var skemmt.
Svo er ég búin að eiga í stökustu vandræðum með tölvupóst. Er búin að senda helmingnum af námskeiðinu sem ég er að aðstoðarkenna í vitlaus verkefni til baka. Ekki bara einu sinni, heldur tvisvar. Einum nemanda þurfti ég að senda verkefnið fjórum sinnum, mistókst ÞRISVAR sinnum. Illi. Já, það er ég.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli