657.færsla. opin búð
Ég á við króníska þreytu að stríða. Orsakast af krónísku get-ekki-sofnað-i. Sit með kók í hendi og bíð spennt eftir kaffinu sem Michael er að hita.
Fór á opinn dag í CISV sumarbúðum sem eru haldnar í núna í gamla skólanum mínum. Það var mjög gaman. Núna er ég aftur alveg sjúk að taka aftur þátt. Stefni að því að fara aftur sem fararstjóri á næsta ári, ef ég get. God þetta er svo skemmtó.
Þetta var reyndar ekki það eina sem var opið þennan dag. Eftir tæpan klukkutíma á opna deginum áttaði ég mig á því að ég var með opna buxnaklauf. God knows hvað hún var búin að vera opin lengi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli