mánudagur, júlí 30, 2007

661.færsla. happy biiiirthdayyy tooo youuuu

Í dag á kærastinn afmæli.
Af því tilefni gerðist ég húsmóðurleg mjög. Keypti köku og gervirjóma, hitaði swiss miss, lagði á borð og notaði eldhúsrúllubréf fyrir servéttur, setti 25 afmæliskerti á kökuna og kveikti á þeim með rokeldspýtu.

Þegar mamma talar um að senda mig í húsmæðraskóla.... þá held ég að...hún hafi nokkuð til síns máls!

En þrátt fyrir smá hnökra, þá var þetta bara huggó svona í morgunsárið:)

Til hamingju með afmælið, Einar. Nú ert þú orðinn ýkt gamall. Bara ári yngri en ég, hahh.

10 ummæli:

Valdís sagði...

Til hamingju með Einar! Og til hamingju Einar!

Nafnlaus sagði...

Ekki veit ég hvernig þú hefðir átt að hafa tíma til að baka eða þeyta rjóma, það tekur auðvitað svolítinn tíma að pakka inn FIMM gjöfum :)

Takk kærlega fyrir, elsku Hlíf. Þetta var frábær afmælisveisla! Já, ég nálgast þig í aldri með hverju árinu sem líður og núna munar ekki nema ári á okkur.

Og takk fyrir, Valdís :)

Nafnlaus sagði...

ég næ þessu á síðustu mínótunum.
vísa til Einars:
aldarfjórðungi síðar
er Einar orðin gamall maður
en Hlíf á vinkonur fríðar
sem Einar klappar glaður.

eða nei ég er sko ekki ljóðskáld en ég get farið með gamanvísur eða atriði í hvaða afmælum, partyum eða útilegum sem er. Til hamingju Einar, Hlíf og Ísland.

kv-Ása

Nafnlaus sagði...

Af hverju klappar Einar fríðu vinkonum hennar Hlífar?

Regnhlif sagði...

hehe. Flott vísa Ása.

Einar er greinilega ekki við eina fjölina felldur, fyrst hann er að klappa ykkur.

Nafnlaus sagði...

hahaha. Ég var samt ekki að hvetja til þess að hann færi að klappa okkur, vantaði bara eitthvað þarna í lokin. Auk þess sem hann er ungur maður og meira segja yngri en við. En ég náið þessu rétt áður en að afmælið hans var búið, ætti að fá hrós fyrir effort.
-kv Ása.

-Auður við erum allar fríðar. Eða það er mín skoðun;)

Regnhlif sagði...

Þú færð hrós fyrir effort:D

Nafnlaus sagði...

Ása: Takk fyrir vísuna.
Auður: Af því að ég fæ tækifæri til þess í Þórsmörk um helgina.
Ása: Sammála, þið eruð allar fríðar.

Nafnlaus sagði...

Bla, bla, bla, bla, bla, bara að prófaaaaaa.

Nafnlaus sagði...

Nú prófar Mammsa í alvöru. Að vísu er ég á leið heim. Ég elska þig svo svakalega.
Bless á meðan.