þriðjudagur, ágúst 07, 2007

664.færsla. verslunarmannahelgin.

Ég var að koma úr mj. góðu ferðalagi.

Fyrst var ég í Þórsmörk í tvær nætur með Auði, Ásu, Bjarna og Einari. Mikið er Mörkin falleg. Fór síðast í fyllerísferðir þangað þegar ég var 17 og 18 ára, svo það var kominn tími til að fara þangað aftur, og upplifa Þórsmörk í meira, hmm, óbrengluðu ljósi. Það var sem sagt drukkið minna og borðað meira í þetta skiptið:) Við sváfum, átum, grilluðum, gengum, spiluðum, sungum og spjölluðum. Ooog það rigndi ekkert. Hahh. Very nice. High five.

Svo brunuðum við einar (nei ég meina, Einar) upp að Bifröst þar sem foreldrar hans voru með bústað. Það böðuðum við okkur (í heitapottisko), borðuðum, gengum (slatta), borðuðum, töluðum og lásum (þ.e. einar talaði og ég las). Mj. huggó.

En í dag hófst baslið á ný. Já, vinna. Ótrúlegt en satt, þá er ég bara nokk endurnærð eftir fríið og finnst ekkert svo leiðinlegt í vinnunni. Svo vinn ég nú bara nokkra daga, því á miðvikudaginn næsta fer ég aftur í ferð... á málfræðiráðstefnu á Mývatni, kem aftur í vinnu þriðjudaginn 21. ágúst, og fer svo út til London (á málfræðiráðstefnu) viku seinna. Mæ lord. Time does fly. Indeed.

Heyrðu, þó mér finnist ógjó skemmtó að stytta orð með -ó.... þá þoli ég ekki styttinguna "versló" fyrir "verslunarmannahelgin". Pirró.is. Kannski af því að "versló" er nú þegar notað fyrir eitthvað annað... þ.e. hinn forna fjanda, versló.

Bless.is

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

mjög gaman. var þetta viljandi í stafrófsröð. er spilakvöld í vændum. eða í vændi. vændi vændi vændi. "ég er tvuvítugur"!
-Ása

Regnhlif sagði...

kwað er í stafrófsröð?

ég vil hafa spilakvöld....
og endurvekja söngkvöld í Heiðmörk.

ég er sumsé til taks til og með þriðjudegi í næstuviku, og svo frá mánudagskvöldi þar á eftir til mánudagskvölds.

Svo er sept kominn.

asa sagði...

nú nöfnin sem þú taldir upp í upphafi færslu. var það ómeðvitað. endilega do tell me hvenær þú ert laus ég skil ekki upptalningar. ég er svo vitlaus nefla haha

Regnhlif sagði...

Já, þetta var viljandi í stafrófsröð. Nei djók.

Nafnlaus sagði...

Oi, achei teu blog pelo google tá bem interessante gostei desse post. Quando der dá uma passada pelo meu blog, é sobre camisetas personalizadas, mostra passo a passo como criar uma camiseta personalizada bem maneira. Se você quiser linkar meu blog no seu eu ficaria agradecido, até mais e sucesso.(If you speak English can see the version in English of the Camiseta Personalizada.If he will be possible add my blog in your blogroll I thankful, bye friend).

Regnhlif sagði...

Nei, herra Camiseta Personalizada... ég hef engan áhuga á persónulegum portúgölskum bolum.

I thankful,
bye friend.

Nafnlaus sagði...

„einar talaði og ég las“???

Regnhlif sagði...

já... ég sat oftast og las á meðan þið töluðuð saman. ég talaði samt náttúrulega eitthvað.
t.d. við þig í pottinum.