þriðjudagur, ágúst 21, 2007

668.færsla.Mývatn

Ég vil byrja á því að koma því á framfæri við alla þá sem reyndu að tala við mig á msn síðustu daga að ég var í raun og veru ekki online. Þaðan af síður var ég lasin, en það voru eldgömul skilaboð.

Neineineinei, þvert á móti var ég í góðu yfirlæti á fjögurra stjörnu hóteli á Mývatni. Svei mér þá, þetta var bara stórskemmtilegt. Þarna voru 59 málfræðingar, aðallega frá norðurlöndunum en líka nokkrir frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Ítalíu og Grikklandi. Dagskráin var stíf. Fyrirlestrar frá 9-7 þrjá daga og svo var líka farið í smá útsýnisferðir. Ja, eina smá og aðra ekkert smá. Sú seinni var semsagt ferð að Öskju í glampandi sól á sunnudeginum. Aldeilis magnað svæði og frábært tækifæri að fá að fara þangað... maður á víst ekki leið þarna framhjá á hverjum degi. Reyndar vildi svo leiðinlega til að það var slys þarna á svæðinu, kona hafði slasast rétt áður en við komum og rétt eftir að við fórum var hún sótt með þyrlu. Þetta leit ekki vel út en hún ku vera á batavegi eftir því sem mbl. segir.

Svo var líka ball við undirspil hljómsveitar eins málfræðingsins og undirsöng annars. Og söngkepni norðurlandaþjóða. Ítalarnir voru líka neyddir upp á svið til að syngja en þá vildi ekki betur til en ítölsk túristakona tróð sér inn í hópinn og ákvað að syngja óperuaríu á meðan hinir ítalarnir stóðu ráðviltir fyrir aftan hana. Það er greinilegt að túristum finnst málfræðingar töff, ekki nóg með að þessi ítalska vildi ólm syngja fyrir okkur, heldur vildi einhver maður af óræðu þjóðerni endilega bjóða grísku málfræðikonunni upp í dans og snéri henni í viltri sveiflu um allt gólf á meðan við hin horfðum á. Sú gríska slapp ekki auðveldlega úr klóm mannsins og mátti dansa hvern dansinn á fætur öðrum við hann. Þegar ég hugsa um það þá virtist hún eiginlega ekkert hafa á móti því. Ein af ítölsku málfræðingunum kom mér líka á óvart með trylltum dansi sínum. Já, málfræðingar, þeir koma á óvart. Gefðu þeim bara smá vín og allt verður vitlaust.


Jæja. Bara vika í næstu ráðstefnu. Stuð.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ehemm..
http://regnhlif.blogspot.com/2005/07/333frslapr.html
vildi bara minna þig á þetta

kv, ása. p.s. þetta er góð færlsa. "ÉG ER EKKI PAR-HLÍF!!!"

Regnhlif sagði...

Hva?
Ég hélt að þú værir par?
Ása Par.