669.færsla. Góður starfmaður
Vó. Ég kafnaði næstum því úr hlátri.
Lenti í daðri í Bónus.
Kassastarfsmaðurinn tilkynnti mér það hátt og skýrt að ég væri "miklu fallegri -- miklu fallegri í eigin persónu en á myndinni" á kortinu mínu. Viðbrögð mín voru náttúrlega að hlæja hátt og skýrt. "Samt góð mynd, sko". Hahaha.
Vá. Þetta var besta bónusferð ever!
Þessi maður ætti að fá einhver starfsmannverðlaun...
6 ummæli:
Hahahaha, en æðislegt! Var hann sætur??
Úbbs, ég steingleymdi að hafa nafnið mitt með :D
njah. Svona fertugur undarlega útlítandi kall. Svona.;)
Fertugur starfsmaður á kassa? Ég hélt að þeir væru allir fjórtán ára.
útlendingur sko.
en mj. góður í íslensku samt. minnir mig
Skrifa ummæli