671.færsla. framtíðin
Ó, æ. Er áhyggjufull. Sá fyrsti sem gerði mig að föðursystur er byrjaður í 10.bekk og er því farinn að huga að menntaskólum. Hann nefndi versló sem möguleika. Ó nei. Sem betur fer var hinn möguleikinn sá besti, þ.e. MR. Ég reyndi að fá hann til að sjá ljósið: vitaskuld væri MR bestur fyrir hann (enda mikið gáfumenni, eins og gengur í ættinni) en eeeef hann þyrfti endilega að fara í einhvern annan skóla þá væri versló verstur! Ekki það að ég hafi verið með einhvern áróður. Hehh.
Mér fannst hann taka furðu lítið mark á orðum mínum. Rétt gat setið á mér að koma með ræðu um að ég hefði nú skipt á bleiu á honum og honum bæri því að sýna mér tilhlýðilega virðingu. O jæja. Ég er alveg búin að missa tökin á börnunum. Verð bara að vona að þeim finnist ég svo kúl að þau feti óafvitandi sömu braut og ég... mr... íslenska. Nei djók.
8 ummæli:
Hm. Þetta var eitthvað öfugsnúið orðað hjá mér. Það mætti halda að bróðir minn væri að byrja í menntaskóla. Ojæja.
Hahahaha! Það er rétt! Og þá væri hann búinn að eignast barn...sem væri nú kannski ekki jafn fyndið! Eníhú - þetta er alvarlegt mál - við Ragnheiður líkaföðursystir reyndum okkar besta líka...er farin að hallast að því að honum finnist engin okkar neitt sérlega góð fyrirmynd :) Hann kunni auðvitað ekki við að segja það, sagði bara að MR væri svo gamaldags og eitthvað (Ég: Þetta er nú líka elsti mennstaskóli landsins, hrrrummmmff! Frekari vildi ég vera í tímum í fjósi en í "marmarahöll"!!!). Svo stefnir hann víst á viðskiptafræði....aaarrg! Hvað eigum við að gera? Að leyfa barninu að ákveða þetta í friði fyrir vel meintum þrýstingi eða setja virkilegan kraft í þetta???
Auðvitað treystum við honum ekki fyrir þessu sjálfum! Við, eldri og vitrari, eigum augljóslega að hafa vit fyrir drengnum. Helst myndi ég vilja setja fullan kraft í þetta en þá er hætt við því að barnið snúist gegn okkur.
Ég held samt kannski að hann sé bara að stríða okkur...
hehe. Ég sagði líka "Borga fullt af peningum í skólagjöld- fyrir hvað? Fyrir að mega læra á marmara?"
ímyndaðu þér ef hann væri tvöfaldur og væri ekki bara að velta því fyrir sér að fara í versló heldur væri byrjaður í sínu námi þar. Ég er að sjálfsögðu að tala um systur mínar, óbermin. Þessi börn hlusta ekkert á mann.
ÞAR KOMSTU MEÐ ÞAÐ!!! Best að ræða beint við foreldra hans, sem kæmu án efa til með að þurfa að punga út f. skólagjöldunum! Hann sjálfur mun örugglega ekki geta það, af sínum litlu sumarlaunum :) Ég held að hann sé EKKI að stríða okkur - vesalingurinn treystir okkur fyrir sínum hugrenningum í þessu efni - og fær bara orrahríðina yfir sig...verðum að fara fínt í þetta. Sem sagt - vinna í foreldrunum..... Hmm...hvernig var það annars, litla mín, varðstu nokkuð fyrir miklum þrýstingi frá mér á sínum tíma??? "Fyrst kemur MR MR MR síðan kemur MR MR MR....osfrv...." :)
Spurning hvort þú gerir þér grein fyrir því að hann afi þinn var í Versló? Haha, það var fyndið að heyra í dóttur minni þegar hún komst að þessu. "Varstu í Versló?!?!?" hátt og skýrt með miklum vonbrigðablæ og vandlætingu í röddinni.
Nje. Ég drakk MR næstum því inn með móðurmjólkinni.
Já, hahahahahahah, það ætti nú að vera auðvelt að fá hann bróður okkar til að sjá að það er svolítið dýrt að senda soninn í versló...:)
Já ég veit, afi var í versló. Hef samt einhvern vegin á tilfinningunni að versló hafi verið svolítið öðruvísi þá.
Jæja, nú er ég farin til London. Eða ekki alveg farin, ég fer í fyrramálið, er bara að leggja af stað til Kef núna. Með viðkomu í Kóp.
framtíðin ji... hann að byrja í menntó og bróðir minn í háskólanum. 87 hlíf, 87 í háskólanum.
(p.s. 87)
-ása
Skrifa ummæli