föstudagur, október 19, 2007

691.færsla. Böggverðlaunin 2007 IV

Keppnin heldur áfram og nú er komið að næst síðasta flokki.
Sá er flokkur SAMNÖRDA. Þessi flokkur er að mínu mati einn af sundurlausustu flokkunum þar sem í hann safnast fólk sem hefur slysast inn fyrir dyr íslenskunnar einhvern tíman á þessum rúmu fimm árum sem ég hef dvalið þar við nám. Rétt eins og í flokki frænkna hef ég lengi ætlað mér að bæta fleira fólki við... en svo gleymist það. Reyndar bætti ég tveimur við nýverið.

Í þessum flokki eru nokkur hópblogg. Þar sem þetta er einstaklingskeppni eru slík hópblogg ekki tekin með.

Jæja, við skulum ekki orðlengja þetta heldur skella úrslitunum fram. Ég verð samt að segja það að það var óvenju mikil spenna í þessu og úrslitin ekki eins og ég hefði haldið að þau yrðu.
EEEn

Í þriðja sæti ... með 57 stig ... er hin ofurduglega tveggja barna móðir og samnemandi minn úr grunnskóla: Sigga G.
Gefum henni klapp í lófa og einnig fyrir að vera svona dugleg að eignast börn.

Í öðru sæti er .... þarna var sko spenna af því að aðeins munaði þremur stigum á efstu tveimur sætunum ... hið ljósa man með latino-áhugann: Svanhvít L I með 70 stig. Glæsilegt

Þá er aðeins eftir að birta úrslitin. Sigurvegari dagsins er formaður Mímis og samnámskeiðshaldarinn Anton K I með 73 stig. Gefum honum gott klapp.

Önnur úrslit
4. sæti: Valdís Ó með 46
5. sæti: Eyrún V með 45 stig
6. sæti: Heimir F V með 45 stig
Lesendur sjá að Eyrún og Heimir voru jöfn að stigum en Heimi var dæmt lægra sæti í refsingarskyni fyrir að vera hættur að blogga
7. sæti: Guðlaugur J Á með 43 stig
8. sæti: Díana R R með 23 stig
Díana er nýliði á blogginu og hefur aðeins bloggað í frá því í ágúst. Efnileg kona hér á ferð. Fylgjumst spennt með henni í framtíðinni
9. sæti: Rannsý P með 9 stig

Glöggir lesendur taka eftir því að 4.-7. sætin eru afskaplega jöfn að stigum. Kannski ekki tilviljun en þau fjögur (og fleiri) unnu öll saman sumarið 2006.

Jæja, þar hafið þið það. Skemmtileg keppni í dag. Á morgun er svo síðasti flokkurinn. Ekki gleyma að kíkja á bloggið. Skjáumst!

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

bravóó!! húrra!! ég sem hef alltaf haldið því fram að ég sé lélegur bloggari hvað varðar magn og gæði en hvað kemur í ljós ha?? þriðja sætið, þetta er magnað.

óvænt ánægja og heiður að rekast hingað inn og sjá það að ég sé svona ofarlega í keppni sem ég vissi ekki einu sinni að ég væri þáttakandi í. HÚRRA

Nafnlaus sagði...

ohh dem it. Við nánari skoðun sé ég að gæði koma málinu ekkert við. ég er samt mjög hamingjusöm kona í dag ut af þessu þriðja sæti.

Svanhvít sagði...

Magn er betra en gæði. Amk á moggablogginu, ekki satt? Maður reynir auðvitað að standa sig... en "orsakavaldur aukins bloggfjölda síðustu daga er ekki til kominn vegna keppninar" (dæmigerð setning sem kemur fyrir í prófarkalestri) heldur að ég sit fyrir framan tölvu ca 16 tíma sólarhringsins sem kemur mjög niður á andlegri og líkamlegri heilsu sem og félagslegum þroska. Einu mannlegu samskiptin eru í gegnum tölvuskjá og einhvers staðar verður maður að tjá sig.

Svanhvít sagði...

Og ég þakka sýndan heiður, sem ég á þó vitaskuld aðeins sjálfri mér að þakka... Til hamingju Antonius blöggull.

Regnhlif sagði...

Hver sem orsakavaldurinn er þá vil ég stuðla að aukinni aukningu bloggfærslna íslenskunema sem og annars fólks almennt.

Nafnlaus sagði...

Óli bróðir spyr hvort orsakavaldur sé ekki áreiðanlega það sama og ástæðutilefni??

Regnhlif sagði...

í nútímasamfélagi leitar fólk oft að finna orsakavald eða ástæðutilefni að ástæðunum.

Nafnlaus sagði...

Vó! Fékk ég verðlaun, kúl, þakkir, þakkir :)

Nafnlaus sagði...

Hahaha skjáumst. Sá þetta fyrst núna, var samt löngu búin að lesa færsluna. Jáh...

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir síðast Hlíf mín:) rosa gaman hjá okkur... ég sé að bloggkeppnin heldur áfram hehe, ótrúlega sniðugt dæmi og gaman að lesa það sem þú skrifar alltaf:)
Knús mús Sólveig H

Nafnlaus sagði...

jæja góða. Hér ert þú að hreykja þér af því auka blogg í bloggheimum en bloggar ekkert sjálf! hysjaðu nú upp um þig bloggbuxurnar, finndu þér ástæðutilefni og orsakavald og bloggaðu KONA.

bless kex