693.færsla. fróð leikur
Mér fannst það svolítið óþægilegt þegar ég áttaði mig á því að ég hef allan minn fróðleik úr bókum. Nú spyrjið þið ykkur kannski nú er það ekki fínt, en málið er að ég hef fróðleikinn ekki úr fræðibókum eða skólabókum, því slíkt vill bara alls ekki sitja í heilanum á mér lengur en á að giska 42 klukkustundir. Nei. Alla mína þekkingu á heiminum og sögu hans hef ég úr skáldsögum og þar af laaaang mest úr barnabókum. Ef ég get spurningu rétt í trivial þá er svona 80 % víst að ég geti nefnt um leið barnabókina sem þetta atriði kom fyrir í.
Dæmi frá því um daginn. [umorðað, man ekki nákvæmlega]. Hvað hét kúrekinn sem átti hestinn Trigger? Ég um hæl: Roy Rogers.
Veit ég eitthvað um Roy Rogers? Nei. Hins vegar minnir mig að söguhetjan í (hinni frábæru) Klukkuþjófurinn klóki hafi haldið upp á Roy.... eða eitthvað.
You name it sko. Flest sem ég veit um Kína kemur úr bókinni (sem ég ELSKA) Forboðna borgin (e. William Bell) og restin kannski úr Villtum svönum (e. Jung Chang).
Myndasögurnar Goðheimar, vaya hvað mér fannst þær skemmtilegar, hafa reynst mér einstaklega vel í sambandi við goðafræðina. Annars myndi ég ekki vita neitt!! Þessar bækur ættu að vera skyldulesning.... muniði, Karkur, þegar hann beit í fægiskófluna,haha. Og Röskva og Þjálfi... Oh, las kannski enginn þetta nema ég?
Villta vestrið og glæpónar þaðan: Jú, auðvitað Lukkuláki, nema hvað.
Þess vegna segi ég bara: Guði sé lof að ég skyldi lesa svona mikið þegar ég var lítil ... annars væri ég algjörlega ófróð og myndi aldddrei fá köku í trivial*
núna reyndar fæ ég suman fróðleik úr sjónvarpsþáttum. Til dæmis lærði ég heilmikið um gyðingdóm þegar Charlotte snérist til gyðingdóms í Sex and the City.
* Ég er alltaf haldin eignarfallsflótta í trivial. Segi alltaf „nú átt þú að spyrja mig bláa spurningu!“
9 ummæli:
Vá hvað mig langar að lesa Goðheimabækurnar núna. Og forboðnu borgina. Ég er samt nýbúin að lesa hana (aftur) þannig að ég má ekki lesa hana strax sko. Verð að bíða nokkur ár.
úff. Nú er ég að fá panikk attakk yfir því að ég fari með fleipur og það hafi ekkert verið minnst á Roy og Trigger í Klukkuþjófnum. En þetta minnir mig. Salka, ertu þarna? Er þetta rétt hjá mér? :)
Mig langar að spila við þig. Spiluðum við ekki púkk þegar þú komst síðast í heimsókn? Á þorrablót 2003 - og varst veðurteppt.
Vá ég hélt að ég hefði verið vel lesið barn ... en þessar bækur datt mér aldrei í hug að lesa. En ég kannast við þetta með fróðleikinn, flest sem ég veit er e-ð sem lærði í Ísaksskóla, það festist allavega betur en það sem seinna kom!
Goðheimar eru bestu bækur í heimi!!!!!!!
Já, Ella, ég er til í að spila hvenær sem er. Vá, já, ég var búin að gleyma púkkinu! Eitthvað urðum við að gera í ófærðinni:) Haha, ég man þegar við Þóra fórum að tala um hvað okkur langaði mikið í nammi, sem var ekki hægt að fá í óveðrinu, og þú bakaðir köku úr einhverju sem þú áttir í skápunum til að seðja nammiþörfina hjá okkur:) Gaman:)
Ég tek það fram að ég las ekki Villta svani þegar ég var lítil. Ég var að minnsta kosti hálffullorðin. Enda man ég mj. lítið úr henni.
Yess, Anna Lea!
Mjög sennilega hefur mig líka langað í nammi.
Já vá, nú þarf ég eiginlega að lesa klukkuþjófinn klóka aftur ;) - spurning um að hafa hana í bókaklúbbnum næst.
Goðheimar eru klárlega bestu bækur í heimi, hægt að kaupa þær á dönsku í bóksölunni... bara snilld...
vó. verð að fara í bóksöluna og kaupa þær á dönsku. Elska þær. Klukkuþjófurinn er snilld, eða það fannst mér allavega þegar ég var yngri. Þarf að lesa hana aftur... já, kannski maður ætti að hafa hana í klúbbnum... hún ætti allavega ekki að vera of löng.
Skrifa ummæli