sunnudagur, nóvember 11, 2007

698. færsla

Þá vitum við það ... nördaumræður og hljóðfræði er greinilega vinsælt í dag. Er enn að reyna að átta mig á því af hverju ÞETTA fékk 50 komment ... en hef ekki komist að neinni niðurstöðu.

En nú ætla ég að skrifa ógeðslega leiðinlega færslu hér með fréttum af mér. Þetta verður samt að vera stutt af því að ég vil ekki sitja lengi fyrir framan tölvuna. Ég er nefninlega búin að fá svívirðilega mikið af mígreniköstum síðustu vikuna eða svo. Hef eiginlega verið í einu stóru mígrenikasti allan tímann. Og það sökkar svoooo mikið. Hef aldrei lent í neinu í líkingu við þetta, hef alltaf bara fengið eitt og eitt kast nokkrum sinnum á ári. Ég rétt gat klárað að fara yfir verkefnin fyrir aðstoðarkennsluna á milli kasta, en hef næstum því ekki neitt getað unnið í mínum eigin verkefnum. Sem náttúrulega gerir mig óánægða og stressaða, sem getur aukið á mígreni! Sökkar!

En jæja. Ég er hætt í bili. Best að reyna að gera eitthvað smá fyrir skólann.

5 ummæli:

Fríða sagði...

Það var nú ekki gott Hlíf mín. Farðu vel með þig og láttu þér batna. Já, og úr því að minnsta kosti eitt af börnunum mínum les þetta þá get ég ekki látið hjá líða að gefa þér það ráð að passa að drekka nóg. Vatn sko.

Nafnlaus sagði...

Hey, bloggið þitt hatar mig jafn mikið og mitt blogg hatar mig. Endalust að þurrka út það sem ég skrifa. Frábært. Skrifaði að það hefði verið fyndið að sjá þig áðan af því að mig dreymdi þig í alla nótt. Við vorum eitthvað að horfa á video og fórum í partý. Svo sá ég þig áðan og við sem sjáumst næstum aldrei. Hefði talað við þig ef ég hefði ekki verið niðursokkin í samtal um helv**** bílinn minn sem er að gefa sig.

Annars ætlaði ég að segja að ég er berdreyminn á einn hátt. Ef mig dreymir fólk heila nótt þýðir það að eitthvað mikið er í gangi hjá því. Það hefur aldrei brugðist. Oftast er eitthvað leiðinlegt eða erfitt í gangi. Svo mig dreymdi þig, svo hitti ég þig daginn eftir og svo las ég færsluna um mígrenið. Kannski er það málið. Kannski eitthvað annað.

Mig dreymdi vinkonu mína svona nóttin áður en ég fór til Madridar. Svo hitti ég hana á flugvellinum og fékk að vita allt sem var í gangi hjá henni.

Jæja, allt of langt. Mundu bara að nálastungur og Einu sinni sögur Kristínar Ómarsd. eru góðar við mígreni.

Nafnlaus sagði...

Betra að hafa nafnið með. Díana

Regnhlif sagði...

Já, merkilegt! Kannski dreymdi þig mígreni vesenið á mér, hver veit.
Ji. Hef aldrei prófað nálastungur. Kannski myndi það samt virka. Þúst, bara stinga á rétta punkta, t.d. punktinn fyrir náladoða í hálfu andlitinu, punktinn sem lætur mann sjá sjónglæringar sem líta út eins og 3/4 af eins konar sól... athugandi.

Nafnlaus sagði...

Hef þrisvar fengið mígreni. Ekki gaman. Þess vegna hætti ég að taka pilluna og þá lagaðist þetta. Þetta er víst ógeðslega fjölbreyttur kvilli með fjölbreyttar orsakir. Baráttukveðja.