sunnudagur, desember 02, 2007

706. færsla. bókabóka

1: Harðspjalda eða kilja, og hvers vegna? Harðspjalda eru fallegri og eigulegri. Hins vegar eru kiljur einhvern vegin lesvænni. Gott að hafa uppi í rúmi eða ofan í tösku og maður fær ekki samviskubit þó maður gefi þeim aðeins að borða með sér (því eins og allir vita er fátt betra en að borða og lesa í einu, sérstaklega laufabrauð). Svo eru kiljurnar líka ódýrari og innihaldið er víst það sama hvernig sem kápan er.

2: Ef ég ætti bókabúð, myndi ég kalla hana… Jah. Hm. Það eina sem mér dettur í hug er að kalla hana Nangiala til heiðurs bestu bók í heimi. Búðin myndi líka vera eins og annar heimur þar sem maður getur gleymt öllum sínum þrautum, og nafnið því viðeigandi.

3: Uppáhalds frasinn minn úr bók (nefnið titilinn einnig) "Must work on spelling, though. After all, have degree in English." Bridget Jones's Diary e. Helen Fielding. (Eins og talað út úr mínu hjarta, nema náttúrulega íslenska en ekki enska)

4: Höfundurinn (lifandi eða dauður) sem ég vildi helst borða hádegismat með…
uuuu.

.5: Ef ég væri að fara á eyðieyju og mætti bara taka með mér eina bók... Kannski bara Biblíuna. Ímynda mér að hún myndi endast í marga margra lestra.... og maður þarf á því að halda á eyðieyju.

6: Það væri frábært ef einhver fyndi upp svona bókatæki sem myndi… gera manni auðveldara að lesa uppi í rúmi. Eða einhver tölvugræja sem myndi segja mér hvar ég var stödd síðast þegar ég hætti að lesa (nei bókamerki virka ekki hjá mér. Ég týni þeim oftast).

7: Lyktin af gamalli bók minnir mig á… þegar ég var með Enid Blyton bækur á heilanum og mig dreymdi að ég fyndi bækur eftir hana uppi í efstu hillu. Daginn eftir fann ég nokkrar mjög sjúskaðar Enid Blyton bækur, kápulausar og mjög rykugar, sem mamma hafði átt uppi í efstu hillu. Vá, mér fannst ég hafa unnið í lottóinu þennan daginn.

8: Ef ég gæti verið aðalhetjan í bók (nefnið titilinn) væri ég… Korka í Við Urðarbrunn/Nornadómi, Jónatan/Snúður Ljónshjarta í Bróðir minn Ljónshjarta, Lýra í Gyllta áttavitanum, stelpan í Circle of Friends.

9: Ofmetnasta bók allra tíma er… segi bara Laxnes eins og hann leggur sig. Fíla hann ekki.

10: Ég þoli ekki þegar bækur… enda allt í einu þegar ég vil að þær haldi áfram að eilífu!!

Allir að setja þetta á bloggið hjá sér og svara þessum spurningum!
Koppíað frá Eyrúnu

6 ummæli:

Fríða sagði...

Búin að því líka :)

Nafnlaus sagði...

þetta var aldeilis skemmtilegt! ég ætla að koppí peista líka...

þú ert skemmtileg.

Regnhlif sagði...

Tíhí, takk. sömuleiðis!

Nafnlaus sagði...

Jú Hlíf mín, ég er sko alveg að fara að blogga, mig vantar bara að vita hvar ég á að vera. Ég vil hafa það einfalt og auðskilið og aðgengilegt og ódýrt og auglýsingalaust og ... ja örugglega eitthvað fleira sem ég veit ekki hvað er. Til dæmis finnst mér óþolandi að vera búin að skrifa einhverja reglulega gáfulega færslu hjá Óttari og svo giska ég vitlaust á staðfestingartölurnar, t.d. O eða núll, og allt bara gufar upp! Urr. Þegar maður spyr fimm manns út í hvað er best, er afar líklegt að maður fái a.m.k. fimm svör.

Regnhlif sagði...

Ég held það skipti voða litlu máli hvað þú velur. Ég held að þessi kerfi sé flest mjög einföld. Mörg hafa reyndar auglýsingar... en það pirrar mig svo sem ekki. Það er hægt að hafa blogspot auglýsingalaust, eins og sést hér:) Ég kann allaveg vel við þetta kerfi.

Nafnlaus sagði...

Ella þú verður bara að muna að gera alltaf ctrl A ctrl C áður en þú staðfestir.
Vildirðu ekki hafa kerfið á íslensku? Ég held það sé ekki til án auglýsinga. Það er svosem hægt að taka þær í burtu ég bara kann það ekki.