þriðjudagur, desember 04, 2007

708.færsla. (lær)dómur

Oh, concentration, where art thou?

Ég hef skorið upp herör gegn sykruðum/sætuðum mjólkurvörum. Þúst, skyr, jógúrt og svoleiðis.
Heyrði það allavega í fréttum í gær held ég að skyr.is drykkurinn væri með 15 sykurmolum og jógúrtdrykkur með 10. Ó mæ lord. Þarf þetta að vera svona sætt?

Kaupi þess vegna bara hreint skyr núna og sykra það þá bara sjálf. Í morgun fékk ég mér til dæmis litla skál af (hreinu) skyri og þurfti ekki að bæta nema svona einni teskeið út í til að það væri ágætt. Ein teskeið er kannski eins og einn sykurmoli. Ekki 10-15. Setti reyndar líka nokkur frosin ber út í, sem ég átti í frysti. Gaf svo sem ekki mikið bragð en mjög flottan bleikan lit:)

Við Einar erum svolítið í bústinu núna. Keyptum fyrst alltaf skyr með bragði, og það var mj. gott. En núna kaupum við bara hreint skyr, og setjum bara sykur sjálf. Kannski eina matskeið út í hálfa stóra dollu af skyri + alla ávextina. Auðvitað eru ávextir með sykur líka, en ég held að þetta jafnist samt aldrei á við alla þessa sykurmola sem eiga að vera í þessum sykruðu vörum. Svo getur maður örugglega minnkað sykurinn smátt og smátt og kannski látið ávextina bara sjá um að sæta þetta(of súrt fyrir mína bragðlauka núna).

p.s ég elska búst.

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

mæli með sírópi, þessu lífræna frá henni sollu, það er mjög gott út í svona mjólkurvörur og alveg pottþétt hollt :)

Nafnlaus sagði...

Ætlaði einmitt að skrifa það sama og Hanna Rún. Agave sírópið frá Sollu (fæst í Bónus)er snilld. Það er unnið úr kaktus og er lífrænt. Mér finnst það gott á bragðið, eins og sykur, og nota það í staðinn fyrir hann. Svo geturðu líka keypt hrásykur, hann er ekki svona unninn eins og hvítur sykur (fæst líka í Bónus).

Gerðu það bara fyrir mig (eða fyrst og fremst sjálfa þig) að fara ekki að kaupa eitthvað með sætuefni. Ég borða miklu frekar sykur en aspartam, af tvennu illu er hann skárri.

Ertu núna orðin ógesslega grönn og stælt og með sléttan maga og hipp og kúl og alltaf í ræktinni og ekkert nammi og allt það?

Ég er á góðri leið með að breytast í múmínálf. Litlu fólki er ekki ætlað að vera fitubollur.

ps. Þótt ég líti ekki út fyrir að það þá veit ég fullt fullt um hollt og lífrænt og og hvar það er ódýrast og hvar er skemmtilegast og að versla og allt það. Bara svona ef þig vantar upplýsingar.

Drr

Regnhlif sagði...

Hmm... kannski maður prófi þetta síróp.

Já, einmitt... Ég tók það ekki fram í færslunni, en þó ég geti kannski keypt eitthvað voða bragðgott SYKURLAUST með aspartam, þá vil ég það ekkert frekar. Þá vil ég frekar sykurinn, en bara ekki svona rosalega mikið af honum. Af hverju sjá fyrirtækin sér ekki leik á borði og framleiða vörur án aspartms og með litlum sykri. Kannski væri þetta ekkert súper gott á bragðið... en yrði örugglega mjög vinsælt miðað við andrúmsloftið í þjóðfélaginu núna.
SKO.

Hahahahahahahha Díana, nei hm ég á mjög langt í land með að fá sléttan maga og allt... (er samt hipp og kúl, always) átakið gekk mjög vel í tvær vikur og ég léttist um tvö kíló. Síðan fór allt niðurávið og nú mæti ég í ræktina tvisvar í viku, borða slatta óhollt (kannski samt aðeins skárra heldur en fyrir átak) og grennist ekki neitt. Ef ég mæti samt tvisvar á viku í ræktina þá dugar það nokkurn vegin til þess að halda mér í sömu þyngd (þó ég borði óhollt) svo það er skárra en ekkert. Ég er bara stolt af mér að hafa þó mætt í ræktina þetta oft, sem er svo ólíkt mér, þó að átakið hafi ekki alveg farið sem skyldi:) Byrja bara aftur í átaki í janúar.

Og já, þú ert minn guð í sambandi við að kaupa ódýrt eða hollt (sá það í sumar).

Jidúdda hvað maður skrifar langt!

Fríða sagði...

Ég hef nú bara eitt um þessi mál að segja. Og það er:

Telja hitaeiningar
telja hitaeiningar
telja hitaeiningar
telja hitaeiningar
telja hitaeiningar....

(endurtakist eftir þörfum)

Sigurrós sagði...

prufaðu ab-mjólk í búst, mjög gott, með jarðaberjum, banana og bláberjum (engum sykri kona!).

Nafnlaus sagði...

Blessuð! Alveg sammála þér með þetta sykurrugl. Ég kaupi hreint skyr handa Frosta mínum og set banana og jarðaber, stundum peru eða bláber út í, og mauka með töfrasprota. Mjög gott, enginn sykur, og ekki súrt.

Sjáumst í klúbbnum í kvöld!

Nafnlaus sagði...

Af hverju thou? Eh

Regnhlif sagði...

Ég held: að þetta sé gamalt orð fyrir "þú" á ensku (enda mjög líkt og "þú" á íslensku), "you" var hins vegar (ef ég man rétt) þérunin (eins og "þér") en tók yfir sem venjulega "þú" orðið. Eins er "art" gömul 2.p.et. beyging orðsins "vera"... eins og "ert". Þannig að beisikallí þá er þetta bara næstum því alveg eins og íslenska:

ó bróðir hvar ert þú
Oh brother were art thou

(sem sagt vísun í bíómyndina "oh, brother were art thou")

Regnhlif sagði...

hey, andsk. "were" átti náttúrulega að vera "where"... var búin að laga þetta en einhverra hluta vegna seifaðist það ekki.

Nafnlaus sagði...

Jahá. Mér fannst þetta líka voða líkt íslenskunni, og datt í hug að þetta væri eitthvað gamalt eitthvað. Heh :) Ég vona að þú haldir rétt, því ég ætla að trúa þessu :)

Regnhlif sagði...

já, samkvæmt wikipediu hef ég rétt fyrir mér:)