709.færsla.
Mér finnst að Birgitta Haukdal ætti að reyna að hætta að vera alltaf svona sykruð. Ef maður er svona sætur að upplagi þá verður maður að gera eitthvað til að vega á móti því. Þess vegna eru til sósur sem heita sweet chili og súrsæt sósa. Það er ekki til sósa sem heitir bara "sæt" sósa. Hún ætti að reyna að syngja hrjúft. Kannski jafnvel pínu falskt. Og vera kannski í gallabuxum og venjulegum stuttermabol. Æ. Þúst. Mann langar ekki í sykur á sykur ofan.
Ég ætti að vera stílisti.
Kannski samt að koma því á framfæri, Birgitta, að Írafár var ekki góð leið til að afsykra þig. Ég held þú haldir að það hafi verið svolítið rokkað, en ekki má ruglast á rokkað og leiðinlegt.
Annars kann ég alls ekki illa við Birgittu. Hún virðist mj. indæl manneskja.
13 ummæli:
Ég held að Birgitta greyið ætti kannski bara að íhuga annan starfsvettvang. Ég heyrði eitthvað lag með henni í gær af þessari nýju plötu og það var bara alls ekkert vel sungið, jafnvel þótt hún væri í sykurhamnum. Hún yrði örugglega fínn leikskólakennari og gæti sungið fyrir börnin því þau hafa ekki skynbragð á feilnótur eða almenn leiðindi og eru því frekar blekkt af kandífloss bleikri sykurfroðu.
Þessi tónlist er svona tónlist sem ég kalla "smjör tónlist"
smjörið lekur bara og leikur. hljómengandi.
-ása
hljóðmengnandi
annars mætti alveg kalla þetta hljómmengandi líka. mengar hljómana.
Ég er ekki alveg viss um að ég sé sammála ykkur að fullu. Ég held að hún geti sungið ágætlega en tónlistin sem hún gerir, og ímynd hennar sjálfrar, er einhvern vegin þannig að það er ómögulegt fyrir fullorðið fólk að fíla hana. Ég meina, eru það ekki bara börn sem fíla hana? Ég held alveg að hún gæti virkað sem alvöru tónlistarkona, hún er bara (að mínu mati) á villigötum. Og ég meina, já, ef hún vill ekki breyta þessari ímynd sinni eða söngstílnum, þá ætti hún kannski bara ekkert að vera að þykjast vera að gera fullorðinstónlist, heldur að einbeita sér að börnunum.
Ég veit það ekki. Kannski er maður of dómharður. Þó ég fíli þetta ekki þá er ekki þar með sagt að einhver annar fíli þetta ekki.
Mér finnst þetta blogg farið að einkennast fullmikið af sykurhatri og ég er ekki viss um að ég sé ánægð með það. Sykur er besti vinur minn og þetta er farið að verða svolítið særandi. ;)
það fíla þetta greinilega margir, enda selur hún grimmt. kannskki ekki samt nýja platan þekki það ekki. já hún getur sungið. tónlistin er samt smjör að mínu mati;)-ás
Þetta er misskilningur! Mér finnst margt sykrað gott. Eins og til dæmis lakkgrís! Mér finnst bara misskilningur að troða 15 sykurmolum í eitthvað sem ætti að vera hollt, þ.e. skyr. :)
Munið þið þegar Birgitta var í loð-múmbúts-skónum sínum og með tvær fléttur eins og krúttleg ís-indjánastelpa.
Helga
ps. Hvernig í djö skrifar maður "múmbúts"?
haha, múmbúts... er það ekki moon boots?
Hún er krúttleg alltaf.
andskotinn. Verð að hætt að skrifa "lakkrís" með tveimur káum og einu ge-i.
Ég er SVO sammála þessari færslu. Er einmitt búin að vera að reyna að útskýra þetta fyrir fólki í vikunni. Takk fyrir!
Ertekkjannars alveg að fara að hætta að spá í Bigittu?? Ég er alltaf að gá að nýrri færslu.
Skrifa ummæli