mánudagur, janúar 14, 2008

719.færsla. um ekkert

Djöfull er ég eitthvað léleg að blogga þessa dagana og mánuðina. Það er samt ALLT búið að vera lélegt hjá mér síðan um jólin. Hef bókstaflega ekki gert neitt. En nú skal verða breyting á. Koma svo. Held það hafi gleymst að blanda dugnaði í uppskriftina þegar ég var búin til. Annars finnst mér á þessari stundu að ég gæti verið ansi dugleg húsmóðir, ef ég væri heimavinnandi húsmóðir. Ég myndi alltaf vera að þvo þvott, baka rabbabarapæ og pönnukökur og sauma á börnin. Dreymdi einmitt að ég ætti barn í nótt. Því miður svaf það í vagni allan drauminn svo ég fékk ekki að sjá það. Nei, ég er ekki ólétt. Það bólar ekki ennþá á barni systur minnar. Enda á það ekkert að fæðast fyrr en á föstudaginn. Það verður spennandi að sjá hvernig litli drengurinn lítur út. Skyldi hann líkjast systur sinni, og vera ljóshærður, þrátt fyrir að báðir foreldrarnir séu dökkhærðir? Kemur allt í ljós sooner than later.

Ég verð að játa að ég skil ekki facebook. Mér finnst þetta skemmtilegt. Til dæmis að leita að gömlum vinum og adda þeim þarna, og þá hefur maður a.m.k. smá tengsl við þá þó það sé kannski ár og öld síðan maður missti samband við þá. En samt skil ég ekki poíntið með þessu... það er ekki einu sinni blogg á þessu... Svo eru allar þessar endalausu applications og alls konar leikir þar sem maður verður að bjóða 20 manns að vera með til þess að sjá niðurstöðurnar. Og öll þessi skilaboð sem maður á að forwarda. Kannski er ég bara leiðindafauskur, en þetta er bara eins og að vera með tölvupóstfang þar sem maður fær svo að segja bara ruslpóst á.

En eins og ég sagði, gaman að vera í smá sambandi við gamla vini, nær og fjær, í gegnum þetta.
En svo eru hinir, sem adda manni án þess að þekkja mann. Ég hef nú ekki verið lengi á þessu en núna eru 3 tyrkir, einn albani (minnir mig), og ein miðaldra bresk kona sem býr á spáni búin að adda mér en ekkert af þessu fólki þekki ég. Af hverju addar miðaldra bresk kona búsett á spáni mér?

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Maður þarf ekki að forwarda neitt ef maður er ekki með superwall og funwall og allt þetta held ég. Ég fæ allavega aldrei svona forwardskilaboð.
Kannski er breska konan einmanna og langar að tala við einhverja aðra konu (eða stelpu, sko þig) sem hefur líka verið útlendingur á Spáni ;)

María Margrét sagði...

Kannski kemur barnið 19. janúar - frábær dagur ég mæli með honum! Annars er ég nokkuð sammála með feisbúkk en það er samt skemmtilegt hehe :)

Nafnlaus sagði...

Sammála þér að sumu leyti varðandi facebook, finnst þetta samt svo skemmtilegt líka:)
En af hverju samþykkir þú vinarboð frá miðaldra breskri konu staðsettri á Spáni??:D hehe

Nafnlaus sagði...

Kv. Sólveig Helga:) semsagt kommentið hér að ofan.

Nafnlaus sagði...

Kv. Sólveig Helga:) semsagt kommentið hér að ofan.

Regnhlif sagði...

Það er náttúrulega rétt að maður þarf ekki að forvarda neitt ef maður vill það ekki, en það breytir því ekki að maður er stöðugt að fá einhver skilaboð, eða boð um að taka þátt í einhverju... sem er kannski alveg skemmtilegt... a.m.k. sumt en það er svo margt sem mann langar ekkert að taka þátt í, en einhver vinur manns bað mann um að taka þátt og þá er maður bara: er ég dónaleg ef ég tek ekki þátt?

En já, María.. það er mergð góðra daga í janúar! Cool mánuður (í öllum merkingum).

Solla: Ég samþykkti kvensuna ekki... ég samþykki bara þá sem ég þekki.

Ég held reyndar að hún gæti hafa addað mér af því að við eigum sama afmælisdag!

Nafnlaus sagði...

Ó.. Ég hugsa það ekki. Ég ignora bara

Valdís sagði...

Sko, ég nota Facebook aðallega til að spila Scrabble og maður verður auðveldlega háður því! Reyndi að bjóða þér í leik um daginn en fékk engin viðbrögð...

Regnhlif sagði...

Ó, sorrý! ég var að byrja að nota þetta skrabbl. Verð að játa að ég er mjög tregur feisbúkkari... en ég vil gjarna spila!:)

Nafnlaus sagði...

Nei, ég fatta ekki allar þessar "applications" á Facebook. Þetta var sko ekki komið þegar ég byrjaði og þá var lífið einfaldara. Enginn súperveggur og drasl til að áframsenda. Mæli með að passa upp á að allskonar lið geti ekki séð prófílinn þinn, fara í "Privacy" og stilla allt þannig að bara vinir manns geti séð það sem maður setur þarna inn - það minnkar til muna svona krípí random ödd...