sunnudagur, janúar 20, 2008

721.færsla. Gerum okkar gerum okkar gerum okkar

Ég er orðin handboltaáhugamaður. Þetta hefur verið að gerast smátt og smátt og var eiginlega alveg komið í heimsmeistarakeppninni í fyrra. Þá stóð ég mig að því að horfa á leiki sem Ísland var ekki einu sinni að keppa í. Núna er ég meira að segja farin að skilja eitthvað í reglunum, þar sem kæróinn er nokkuð duglegur að fræða mig um þessi efni. Haha. Mér finnst íþrótta "lingó"ið svo fyndið stundum. Held það sé bara vegna þess að ég hef hingað til haldið mig mjög fjarri öllu sem felur í sér hreyfingu, hvað þá sjónvarpaðri hreyfingu, og er því ekki alveg inni í þessu. Til dæmis gat ég hlegið endalaust að "ólöglegri hindrun" í fyrra. Held mér hafi þótt svo fyndið að orðið "ólöglegur" væri notað, þá fannst mér eins og þetta væri bannað með landslögum. "Hann misnotaði tvö víti"... þá sé ég alltaf fyrir mér einhvern perrahandboltamann sem MISNOTAR vítið. Svo finnst mér endalaust fyndið hvað íþróttafréttamennirnir verða stundum ákafir og dramatískir í lýsingum "íslenska liðið er bara eins og fuglinn Fönix sem rís upp úr öskustónni..."
"Sjáiði einbeitinguna, sjáiði viljann!!" En fyndnast finnst mér samt þegar það er sýnt úr leikhléi... ég hélt alltaf að þjálfarinn kæmi einhverjum mikilvægum skilaboðum á framfæri, eins og að þeir ættu að skipta um leikkerfi, eða blokkera einhvern gaur, eða passa vinstra hornið, eða eitthvað... en þá er þetta alltaf bara "uuustrákar, strákar, strákar, bara keyra upp hraðari sóknir, Óli, Óli, bara koma svo. BERJAST!":) Skil reyndar vel að þeir segi ekki mikið af viti, með adrenalínið á fullu.

En hvað sem þessu líður þá finnst mér handbolti skemmtilegur! Það er bara svo taugatrekkjandi að halda með íslenska liðinu... maður veit aldrei á hverju maður á von.

10 ummæli:

asa sagði...

eftir ÍSLAND-DANMÖRK leikinn (sem ég horfði á á sportbar með íslendingunum mínum og helmingur gesta voru íslendinga -hinn helmingurinn danir) og spennandi jafntefli í blálokkin og í framlengingu og öskur, adrenalín, þjóðerniskennd og svita þá varð ég heitur handboltaáhugamaður. eurovision hvað.. FÖRUM ÚT Á LEIKI!!!! JÁ!!!!

p.s. lýsingin í Ísland- Svíþjóð "hann át hann bara. .. þögn.. í morgunmat."- hahaha afhverju ekki í kvöldmat? já.. þetta sagði hann þegar guðjón valur stal boltanum af chulce eða hvað hann heitir.

asa sagði...

p.s. miðað við allt sem tilgangslaust er á facebook er til grúppa sem heitir STRÁKARNIR OKKAR. það er málið! ÁFRAM ÍSLAND.!!!
ÚFF. mér finnst þetta svo spennandi.

Regnhlif sagði...

já, ég man eftir "hann át hann bara.. í morgunmat":) hahah

Nafnlaus sagði...

Hehe :) Um daginn sögðu þeir eitthvað með: sáuiði klippunguna?! Ég hef nú alveg horft á handbolta áður, en pældi samt aðeins í hvernig hárið hans hefði litið út. Mikið fannst mér þetta heimskuleg hugsun eftir á.
Ég verð alltaf svo glöð þegar fólk minnist á Danmörk-Ísland leikinn. Hann var svooo spennandi. Og endaði svo vel. Hehe

Regnhlif sagði...

Nei... ENDAÐI ILLAAAAAAA!!

asa sagði...

Ha?????? HANN ENDAÐI ILLA FÓLK KALLAÐI OKKUR TUDEFJES!

Nafnlaus sagði...

Nehei.. :D Þetta var frábær endir. Og það var svo gaman í skólanum daginn eftir :) Það vildi reyndar engin stija við hliðina á mér... ;)

Nafnlaus sagði...

Omigod, eg held ad thetta se fyrsta stormotid i handbolta sem eg missi af... eg nenni ekki einu sinni ad kikja a mbl til ad sja hvernig theim gengur. Their vinna orugglega bara af thvi ad eg er ekki tharna til ad sja thad.

Allavega, ein spurning: er eitthvad ad fretta af tjarnargotunni?


A morgun: Kayak ferd a einhverri a (veit ekki hvort thad er Mekong eda einhver onnur) sidan hofudborgin og svo aftur til Taelands i eyjahopp og gledi.

Ad lokum vil eg fyrirfram oska ther til hamingju med afmaelid thar sem eg er ekki algjorlega viss um ad komast a netid naestu daga. Eg vil lika minna a ad thu ert rosalega mikid velkomin til Madrid eins og vid toludum um (thott ad eg se buin ad vera med folki herna allan timann tha sakna eg thess ad hanga med minum vinum sem skilja humorinn minn (eda thykjast skilja hann allavega) og tala islensku) Hafdu thad rosa gott a ammlisdaginn og allir sem lesa thetta vinsamlegast knusa hana fyrir mig!

Nafnlaus sagði...

hahahha ja eg er lika ordin nokkud aestur handbolta ahugamadur sko. Buin ad horfa a alla leiki med islandi og nokkra auka svona til ad sja hin lidin.. hvad vid eigum von a og svonna. -ja get reyndar thakkad kaero og kobensigrunu fyrir akafann og ad kaupa leikina a netinu og tengja vid sjonvarpid...

Eina goda vid ad horfa a island frakkland med einum frakka, er ad hann er svo astfanginn af islandi -gegnum islendinginn sinn- ad hann var farinn ad stydja okkur og fagna morkum. Thegar hann var inntur eftir thessu dissi a eigid land sagdi hann bara ad thetta skipti okkur greinilega svo aaaaagalega miklu mali..

Thad var hinsvegar mikil skemmtun ad horfa a leikina a saenskum eda norskum stodvum. Ojojoj... Bra svenson bra.

Nafnlaus sagði...

Það er ógeðslega gaman að fylgjast með íslenska handboltaliðinu. Ég er alveg dottin í það í þessu móti núna,verst bara hvað þeir koma alltaf á óvart:) ég veit aldrei hvort þeir eru að fara skíta á sig eða sigra með glans hehe
Kv.Sólveig Helga