722.færsla. oh what a beautiful day.
Hef sjaldan orðið eins móðguð og á tuttuguogfimmára afmælsidaginn minn þegar ég las frétt þess efnis að einhver breskur vísindamaður hefði reiknað út að dagurinn væri versti dagur ársins. Þvílík ósvífni. Hann hefur greinilega gleymt að taka afmælið mitt með í reikninginn.
Sárin ýfðust upp í dag, þar sem dagurinn í dag á að vera versti dagur ársins samkvæmt þessum kalli. Er svolítið fegin að það skuli ekki vera afmælisdagurinn minn. Það sem hins vegar sló mig við fréttina í dag er að þessi svokallaði vísindamaður er næstum því alnafni minn: Cliff Arnall
Spooky? já!
17 ummæli:
Já, þetta með nafnið fyllir mælinn.
Til hamingju með þennan framúrskarandi góða dag.
Já, til lukku með daginn! Gott að hann er ekki sá versti, afmælið þitt hefur verið tekið með í reikninginn í ár og þess vegna gærdagurinn valinn!
Til hammó með ammó sagði einhver. Nú segi ég það. Þar sem líf mitt snýst um leir og perlur og snýtingar (Rakel veik)er færni mín á öðrum sviðum en leiksviðum engin í augnablikinu. Áttu sem sagt afmæli í dag? Eða var það í gær? Ég skilur ekki. Allavega. Feliz cumpleanos (ekkert enje hérna).
Annars er ég að verða 25. Einhvern veginn er það mjög stressandi. Þarf ég ekki að halda veislu og eitthvað? Mjög stressandi.
TAkk, en ég á samt afmæli á morgun:) Skil samt vel að þetta sé ruglandi, þar sem ég er alltaf að tala um afmæli.
Litli frændi minn á samt afmæli í dag. Ekkert bólar þó á nýja frændanum sem átti að koma á laugardaginn en líkar greinilega vel í hlýjunni í bumbunni.
25 ára afmæli er mikilvægur áfangi:)... þó mér hafi fundist ég óskaplega gömul þegar ég varð 25 ára, þá sé ég það núna að 25 ára er enginn aldur! Þannig að þú skalt endilega halda veislu:)
Nýjasti frændinn hlýtur að koma á morgun ;)
Nú var það afmælisdagurinn minn sem fékk það hlutskipti að vera versti dagur ársins. Ég hef aldrei skilið hvað fólk hefur á móti janúar, árið rétt að byrja og full ástæða til að vera bjartsýnn og hress.
Til hamingju með afmælið á morgun annars :)
já, til hamingju Hanna! Gleymdi samt að óska þér á afmælisdaginn þinn... Já, alveg sammála: mér hefur alltaf þótt janúar mjög góður mánuður:) Til dæmis eru engin próf (a.m.k. í Háskólanum) í janúar... engin erfið ritgerða eða verkefnaskil...
Til hamingju með daginn í dag :)
til hamingju með afmælið í dag Hlíf! og til hamingju um daginn Hanna!
januar er totaly betri með þessu sko;)
Til hammara med ammara!!!!!
hhaha ætlaði einmitt líka að segja til hammara með ammara. En þar sem það er soooo last comment þá segi ég bara ; tilykke med fødselsdagen kære skat!! hurra hurra hurra. Jeg synes også at januar kan være en dejlig måned.. i hvertfalt nu da jeg ikke har nogen eksamener kun arbjede (veit líka að þú elskar dönsku meira en hinn almenni íslendingur)
Til hamingju með afmælið í dag:)
kv.Sólveig Helga
Telyk' me' føs'dagen! :)
Til hamingju með afmælið kæra Hlíf. Þetta voru mjög sterk rök hjá þér fyrir kostum janúars. Það sem fer með mig samt er þessi endalausi varaþurrkur sem einkennir útlit mitt í janúar, já og rafmagnað hár út í allar áttir. En...mér finnst janúar samt alveg magnað góður mánuður, svo mikið upphaf eitthvað. Mars og apríl mega skíta í sig og hverfa, þá ætti að vera vor eins og hjá öðrum siðmenntuðum þjóðum en ekki slydda og skítugt gras með stöku snjóskafli. Ógeðslegir þeir mánuðir.
p.s sorrí sníkjublogg.
Ég lýsi því hér með yfir að það er of langt á milli blogga hjá þér. Mér finnst gaman að lesa þau og það er ekki fallegt af þér að láta mann fara svona margar fýluferðir á seinfærri tölvu.
Hurðu smá leiðrétting á mæringu janúar þetta er náttúrulega einn af glataðari mánuðum ársins og í janúar eru endurtektarpróf í H.Í.
Skrifa ummæli