miðvikudagur, janúar 30, 2008

724.færsla. Skrifað af háum hesti

Ég var að lesa 24 stundir áðan. Þar var lítil frétt um að spenna magnaðist í Gvæjana milli íbúa af indverskum og afrískum uppruna. Kom þetta mér nokkuð á óvart þar sem ég vissi ekki betur en að Gvæjana væri land í Suður-Ameríku. Ég vissi vel að í (sumum) löndum rómönsku Ameríku eru margir íbúar af afrískum uppruna... en ég kannaðist ekkert við að indverjar hefðu flykkst til nýja heimsins.

Það ætti kannski að skikka alla blaðamenn í landafræðileikinn góða (eða leikinn á feisbúkk) svo þeir geti áttað sig á því hvenær indian þýðir Indverjii og hvenær það þýðir indjáni.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

váts en skemmtilegur leikur

Fríða sagði...

ég ætla að búa til lista yfir leikina sem ég finn í gegn um þig

Regnhlif sagði...

Þið getið líka (eins og þið kannski sjáið:)) prófað ykkur í öðrum heimsálfum eða -hlutum. Með hjálp þessa leiks (og leiksins á feisbúkk)er ég búin að læra utan að löndin í afríku, suður-mið-norðurameríku, evrópu og asíu. Ég sökka enn í Eyjaálfu (ekki séns að læra þessar eyjar) og ríkjum Bandaríkjanna en er orðin nokkuð góð í Karabískahafinu.

Og við erum að tala um að ég vissi EKKERT í landafræði fyrir. Jújú, vissi svona sirka í hvaða heimsálfu löndin væru... en ekki nánari staðsetningu landanna. Ekki einu sinni í Evrópu.

Tinnuli sagði...

Reyndar Hlíf, þegar nýlenduherrarnir frelsuðu Afríkanana undan oki þrældómsins fluttu þeir inn kynstrin öll af Indverjum (já, frá Indlandi) í staðinn, sem ódýrt vinnuafl, svo að kannski er þetta ekki vitleysa.. Það er varla meiri kynblöndun að finna en þarna í Vestur-Indíum og þar í kring hugsa ég..

Tinnuli sagði...

http://en.wikipedia.org/wiki/Guyana#Demographics
Sjá einnig link um þjóðerni þau sem byggja land þetta...

Thora sagði...

ég gæti alveg trúað því að það væri fólk af indverskum uppruna þarna, þar sem í surinam (eitthvað solleis) er fullt af fólki af indverskum uppruna, hef hitt nokkra ... og surinam er þarna rétt hjá :)

þetta er s.s frá því á öldum þrælanna ...

Regnhlif sagði...

Ok. Athyglisvert:) Það var nú gott að ég skrifaði færsluna af háum hesti:) Þegar ég set mig á háan hest dett ég nefninlga mjög oft illilega á rassinn.

Haha.

Ég kíkti meira að segja aðeins á wikipedíu þegar ég var búin að skrifa færsluna (og flaug þá sem snöggvast í hug að ég gæti haft rangt fyrir mér) en las þetta greinilega ekki mjög vel.... því þarna stendur að indverjar séu 43%.

Takk fyrir leiðréttingarnar:)