739.færsla. andlag
Jæja. Ég komst lífs af frá fyrirlestrinum. Gekk ágætlega. Fyrir utan það að ég mismælti mig í sífellu. Sagði andlag í staðinn fyrir rökliður, sagði andlag í staðinn fyrir þolfall... þegar ég hugsa um það þá var andlag örugglega algengasta orð fyrirlestrarins, þó að hann hafi alls ekki fjallað um andlög
En skemmtilegar umræður og svona. já.
4 ummæli:
Þetta hefur þá verið svona frekar andl(a)egur fyrirlestur?
já eiginlega
Takk fyrir síðast! Klárlega skemmtilegasti málfræðifyrirlestur sem ég hef heyrt :)
haha. takk fyrir það.
Mig dreymdi í nótt að ég væri að flytja fyrirlesturinn aftur, nema í þetta skiptið var ég skiptinemi á Englandi, en ég hafði gleymt að þýða fyrirlesturinn/dreifiblöðin yfir á ensku! Úbbs.
Skrifa ummæli