742. færsla. Undankeppnin
Jæja. Ég get nú ekki annað en skrifað aðeins um forkeppnina í Eurovision. Mér hefur fundist Laugardagslögin frekar leiðinlegur þáttur og ekki nennt að fylgjast með þessu. En úrslitaþátturinn verður örugglega skemmtó.
Gef mér von (Páll Rósinkrans og Guðmundur Jónsson):
Æ. Bara vont. Fyrir minn smekk. Væmið, hallærislegt og leiðinlegt lag. Hef svosem ekki hlustað á það oft, enda langar mig ekkert til að hlusta á það.
Núna veit ég (Magni og Hafdís Huld)
Get næstum því sagt það sama um þetta lag og lagið á undan. Þetta finnst mér þó a.m.k. “pínu sætt” lag ... en ég fæ bara einhverja svona júróvisjón velgju (kannski mætti laga það með útsetningu samt). Ekki nógu sterk laglína til þess að vekja nokkra athygli.
In your dreams (Davíð Þorsteinn Olgeirsson)
Fyrst þegar ég heyrði þetta lag fannst mér það ekkert sérstakt, en ég verð ánægðari með það við hverja hlustun. Vekur ekki hjá mér velgju, heldur meira svona kátínu. Ég væri alveg sátt við að þetta lag færi út og held það gæti alveg gert sæmilega góða hluti. Hef samt smá áhyggjur af því að fyrsta hlustun er ekki nóg (a.m.k. ekki fyrir mig), sem er aldrei gott í júróvisjón.
Hvað var það sem þú sást í honum (Baggalútur og Magnús Eiríksson)
Æ. Fyrir mér er þetta algjörlega grátt lag. Tek ekkert eftir því. Engan vegin líklegt að þetta lag geri góða hluti úti. EKKI SÉNS. Nei. Ég get ekki gefið þessu lagi stig. (laglínan er samt alveg krúttleg)
Fullkomið líf (Eurobandið og Örylgur Smári)
OK. Persónulega fara flytjendurnir í taugarnar á mér (en samt góð á balli) en ég ætla að líta fram hjá því. Allir vita að þau VILJA ÞETTA SVOOO MIKIÐ og ég er viss um að þau myndu skila sínu mjög vel... en þetta lag er bara of mikið wannabe júróvisjón. Ok, týpísk júróvisjón lög geta alveg verið góð sem slík. Og þetta lag er alveg nálægt því, en mér finnst eitthvað vanta. Ég verð alveg þokkalag sátt ef þau fara út (ekki himinlifandi) og eins og ég segi, þau munu örugglega standa sig þokkalega. En ég væri ánægðari ef þetta væri ekki svona rosalega mikið Júrósvisjón
Hvar ertu nú (Dr. Spock og Dr. Gunni)
Ok. Hahaha. Ég fíla þetta. “Sjipp hoj, sjipp hoj”. Mér finnst andstæðan svo skemmtileg. Verð ánægð ef þetta fer út, en efast stórlega um að þetta hljóti náð fyrir augum kjósendanna úti í heimi. Til þess er þetta of hart. Gæti þó náð atkvæðum þeirra sem fíla ekki júróvisjónvelgjuna, en ég er bara ekkert svo viss um að það fólk horfi yfir höfuð á júróvisjón.
En verð samt ánægð með þetta framlag
Ho ho ho, we say hey hey hey (Merzedes Club og Barði Jóhannsson)
Ok. Ég bara fíla þetta lag!!!! Ég elska að horfa á flytjendurna. Aldrei hélt ég að ég myndi segja þetta, en mér finnst Gillzenegger snilld hahahahaha. Og mér finnst lagið gott! (þó þetta sé kannski ekki stíll sem ég fíla venjulega). Ég hef samt pínu áhyggjur af því að mér fannst stelpan syngja illa í síðustu keppni. En ef það verður lagað .... þá held ég barasta að við ættum að senda þetta út. Get samt ekki alveg séð það fyrir hvernig því verður tekið úti. Held að þetta gæti alveg virkað (þetta er ekki eins mikið diss og Silvía var).
Don’t wake me up (Ragnheiður Gröndal og Margrét Kristín Sigurðardóttir)
Æ. Hvað á ég að segja. Sætt lag. Minnir mig samt óþægilega mikið á eitthvað lag. Kannski bara týpískt lag. Fíla Ragnheiði Gröndal og hún syngur mjög vel, en ég get engan vegin gefið þessu lagi mitt atkvæði. Fyrir mitt leyti er þetta ekki nógu svona... skemmtilegt eða grípandi eða eitthvað. En samt ágætt lag. Bara ALVEG eins og fleiri svona lög.
Og hver held ég að úrslitin verði?
Ja, ég held að fimm lög eigi möguleika á því að komast í efstu þrjú sætin. Það eru Don’t wake me up, Ho ho ho we say hey hey hey, Hvar ertu nú, Fullkomið líf og In your dreams. Hin lögin (Hvað var það sem þú sást í honum, Gef mér von og Núna veit ég held ég að eigi ekki séns (eða vona það)). Mig grunar að í fyrsta sæti verði Ho ho ho, svo skýt ég á að Hvar ertu nú komi í annað sætið og Fullkomið líf í það þriðja. Annað og þriðja sætið gæti þó víxlast.
En helst myndi ég vilja að úrslitin yrðu:
1. Ho ho ho
2. Hvar ertu nú
3. In your dreams
Myndi helst vilja að eitthvað af þessum lögum færi út. Fullkomið líf má líka fara mín vegna, en ég verð svekkt ef Don’t wake me up fer. Held samt alveg að það gæti komist ofarlega hér á landi, því það höfðar örugglega til eldri kynslóðanna. Efast samt um að það gerði góða hluti úti.
Jæja, svo er bara að sjá hvernig þetta fer í kvöld. Ég verð reyndar í leikhúsi, en horfi kannski á þetta á upptöku:) (þannig að ekki hringja í mig rétt eftir að úrslitin verða tilkynnt til að fagna/syrgja).
7 ummæli:
Ok. Týpískt. Lagið sem ég er með á heilanum eftir þetta blogg er "Hvað var það sem þú sást í honum" sem ég sagði að væri "algjörlega grátt lag", það er þó ekki "grárra" en svo að maður fær það á heilann.
Hlusta má á lögin á http://www.ruv.is/laugardagslogin/
Já og kannski ég bæti því við að ég hefði viljað sjá Wiggle song (eða hvað sem lagið hét) í úrslitum.
ubbs sorry, las ekki thessa faerslu fyrr en eftir ad eg sendi smsid.
Sko þú átt að hlusta á þér eldri og vitrari frænkur. Langbesta lagið og hið eina sem hægt er að fá á heilann er auðvitað Hvað var það sem þú sást í honum! Auk þess mjög gaman að dansa við það, búin að prófa það á tveimur þorrablótum og einu sinni í stofunni hérna.
úff, eldri og vitrari frænka. Hérna ætla ég sko ekki að vera sammála þér. Mér finnst "hvað var það..." hundleiðinlegt. Þó ég fíli almennt baggalút. Og mig langar ekkert að dansa við það:)
Og Auður: Allt í lagi:) síminn var enn á silent eftir leikhúsið og ég kíkti ekki á hann fyrr en einhvern tíman um nóttina.
Oh, þú nýtur þess ... að ég næ ekki til þín.
Skrifa ummæli