729. færsla. bolludagur
Hey. Kannist þið við að segja "tvíbaka, bolla, kringla, krans" þegar maður flengir með bolluvendi? Oh djöfulli langar mig í bolluvönd. Ég fór allt í einu að pæla hvort þetta væri eitthvað sérstakt við mína fjölsk. því mér finnst eins og allir aðrir segi bara "bolla bolla", svo ég gúglaði þetta náttúrulega en fann: ekkert:(. Hins vegar kom slatti af leitarniðurstöðum með "bolla, bolla, kringla, krans"... sem er svona eins og beggja blands.
Ég var ofurhúsmóðurleg í gær og bakaði vatnsdeigsbollur. Þær heppnuðust ljómandi vel... fyrir utan það hvað þær voru fáar eitthvað... er næstum búin með þær allar ... alein.
En ég get sagt ykkur það að ekki var ég ánægð með 10-11 í gær. Ég hringdi í múttu og fékk uppskrift af bollunum og sá að mig vantaði næstum ekkert. Nema eitt egg, rjóma til að setja á bollurnar og bökunarpappír. Hoppaði niður í 10-11 sem er í húsinu mínu til að kaupa þetta þrennt, sem ég hélt að væru hlutir sem ættu alltaf að vera til í öllum búðum. En nei, af þessu þrennu var bara til bökunarpappír. Ég íhugaði að fara í fýlu, en ákvað svo að þetta væri bara ágætis afsökun fyrir því að fá mér göngutúr í næstu búð, sem er drjúgan spotta í burtu. En þá varð ég ansi fúl þar sem í þeirri búð voru bara til egg, en hvorki rjómi né bökunarpappír! Hvað er málið ég spyr nú bara. Þurfti því að fara aftur í fyrri 10-11una og kaupa bökunarpappírinn og neyddist til að kaupa bara gervirjóma sem mig langaði ekkert í. Maður á nú ekki að þurfa að fara í margar búðir til að finna þessa hluti. En kannski hefur rjóminn selst upp út af bolludeginum.
En gleðilegan bolludag. Það er gott að hafa dag þar sem maður má vera bolla í friði. Bolla bolla.
4 ummæli:
Ég kannast ekkert við þessa þulu.
strákurinn kom heim með æðislegan bolluvönd sem var föndraður í leikskóla en þrátt fyrir þrábeiðni mína harðneitaði hann að bolla mig. "uuu nei" var orðrétt svar þegar ég spurði hvort hann vildi ekki bolla mömmu. Mér leið pínu eins og asna...
en ég kannast ekkert við þessa þulu. bara bolla bolla
gott barn, vill ekki flengja mömmu sína:)
gott barn, vill ekki flengja mömmu sína:)
Skrifa ummæli