735.færsla. Ég heit Hlíf, ég er tröll
Ég er tröll.
Litla frænka mín sem verður 3 ára á morgun sá mynd af mér þar sem ég er 6 ára í trúðabúningi. Hún benti á myndina og sagði "sjái tröllið!". Þá var henni vitaskuld sagt að þetta væri nú ekki tröll heldur Hlíja frænka að leika trúð, en stúlkan var sannfærð um að þetta væri tröll og var um leið mjög hrædd við tröllið. Út frá þessu spunnust síðan langar umræður þar sem ýmsir fjölskyldumeðlimir reyndu að útskýra fyrir skelfingu lostnu barninu að þetta væri í alvörunni bara Hlíja frænka í trúðabúningi.
Eitthvað fór þessi röksemdafærsla öfugt ofan í barnið. Eini sannleikurinn sem hún gat fengið út úr þessu öllu saman var: Hlíf er tröll!
(Hlíf er á myndinni + myndin er af trölli = Hlíf er tröll!)
Vona að hún taki tröllið í sátt þegar það kemur færandi hendi í afmælið á morgun. Kannski ég kaupi handa henni Ástarsögu úr fjöllunum eða Hundrað ára afmælið.

1 ummæli:
hahahahaha æðislegt..
Skrifa ummæli