737.færsla. Segðu mér allt
Mér finnst svo fyndnar fyrirspurnirnar á vísindavefnum sem eru orðaðar svona:
"Getur þú sagt mér allt um X?" þar sem X er venjulega eitthvert dýr.
Ef ég inni fyrir vísindavefinn myndi ég örugglega vera rosa fyndin og svara þessum spurningum: "Nei"
Auðvitað getur engin sagt einhverjum ALLT um gíraffa, eða gekkóa eða hvað sem er.
5 ummæli:
Ég man ekki hver það var sem spurði pabba einu sinni; kanntu ensku alveg?
Hahah :)
Af hverju er það inni og ekki ynni? Ég skildi ekkert hvað stóð þarna fyrst.
æ. úps. þetta er bara stafsetningarvilla... ég hef alltaf verið léleg í ufsilonunum:)
já okay, heh
Skrifa ummæli