738.færsla. sokkar
Á einhver við það vandamál að stríða að haldast ekki í sokkum? Þetta er ótrúlegt. Ég er alltaf búin að klæða mig úr sokkum, algjörlega óafvitandi, u.þ.b. fimm mínútum eftir að ég klæddi mig í þá. Svo ranka ég við mér þegar tærnar eru farnar að kólna, en ég er einmitt frekar fótköld, alveg hissa á því að ég sé berfætt og skil ekkert í því hvað hefur orðið um sokkana. Svo eru sokkar á víð og dreif um íbúðina. Sérstaklega undir skrifborðinu og öðrum borðum. Greinilega gott að klæða sig úr sokkum undir borðum.
Þaðan af síður helst ég í inniskóm. Þeir eru foknir eftir mínútu.
Mamma mín og systir skilja mig ekki. Þær eru alltaf í inniskóm sjálfar og reyna mjög mikið, af einskærri góðmennsku, að troða mér í inniskó þegar ég er í þeirra húsum.
Þetta er eiginlega hvimleitt, vegna þess hve ég er fótköld. Þyrfti að flytja til heitari landa þar sem það gengur upp að ganga um berfættur alla dag.
Annars er það af mér að frétta að ég er að basa við að gera fyrirlestur sem ég ætla að halda á Mímisþingi á morgun. Ýkt cool. Get samt ekki sagt að hann sé tilbúinn eða mjög nálægt því að vera tilbúinn. Get ekki sagt að ég myndi ekki vilja vera búin að þessu. En þúst. Skiluru.
3 ummæli:
Nohh verður bara með 30 mínútna fyrilestur! kalla þig duglega! ég gæti þetta ekki, myndi tala svo hratt að fyrilesturinn væri búin á 5 mínútum :)
HÚRRA FYRIR ÞÉR!! OG GANGI ÞÉR VEL!
Veistu, Þóra, þetta er mjög stuttur tími!:) 20 mínútna fyrirlestur og 10 mín í spurningar/umræður. Það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur frá manni á svona fyrirlestrum. Þ.e.a.s. þegar maður les ekki bara alveg beint upp af blaði... þá lendi ég oft í því að tala miklu hraðar en ég hélt að ég myndi gera.
Elsti sonur minn var nú bara helst ekki í sokkum þegar hann var krakki. Gilti einu hvort hann var í skólanum eða annars staðar. Notar þá frekar nú orðið.
Skrifa ummæli