744.færsla. óbærilegur þungleiki tilverunnar
Af hverju er lífið svona erfitt? Af hverju flýgur tíminn alltaf frá mér? Af hverju finnst mér ég aldrei gera neitt af viti? Aaaaaaaf hverju er ég ekki búin með þetta blessaða nám mitt? ....
Er svarið: Af því að ég er auli?
Spurning.
7 ummæli:
Sko... þetta þarfnast langs komments því það þarf að kryfja nákvæmlega til mergjar allar þær forsendur sem þú ert greinilega búin að gefa þér. Og þar sem rútan til Húsavíkur fer réttbráðum þá verður það að bíða betri tíma
Jaa, það er spurning já. Með hliðsjón af því hvernig þú ert ættuð hallast ég að því að svarið sé nei.
Ástæðan fyrir því að þú ert aldrei ánægð með sjálfa þig (ok, sjaldan)og finnst þar af leiðandi allt erfitt og helvítis tíminn alltaf hverfa frá þér er vegna þess að þú gerir óraunhæfar kröfur til þín.
Núna ert þú að hugsa: Það eru ekki óraunhæfar kröfur að ætlast til þess að ég læri í nokkra tíma í dag.
Það er alveg rétt, ekkert óraunhæft við það.
Það er hins vegar óraunhæft að ætla það að allir dagar séu eins, að slæmir dagar geti ekki verið eins margir og þeir góðu, ef ekki fleiri á köflum.
Þú verður að læra að hætta að refsa sjálfri þér. Gleðstu yfir klukkutímanum sem þú lærðir í stað þess brjálast út í sjálfa þig fyrir þann tíma sem þú eyddir í ekki neitt (sem er reyndar sjaldnast raunin, yfirleitt eyðir maður tímanum í eitthvað þótt það sé í eitthvað annað en maður ætlaði sér upphaflega).
Þótt dagurinn hafi ekki farið eins og þú vildir er hann ekki ónýtur, ekki vitleysa. Ekki nota næstu daga í sjálfsvorkunn yfir því hvað þú ert mikill aumingi (sem þú ert ekki), gefðu þér heldur nýtt tækifæri á hverjum degi.
Ég lifi þannig. Eins og alkarnir. Einn dag í einu. Hrósa mér fyrir hvert smá afrek og reyni að rakka mig ekki niður ef ég stenst ekki mínar eigin kröfur.Ég ég hrasa stend ég upp aftur, það kemur ekkert annað til greina.
Og það skiptir ekki máli af hverju þú ert ekki búin með námið. Þú ert alveg að verða búin. Þú munt klára það og það er það sem skiptir máli.
Ógisslega flott hjá Hlífinni.
Eg verd ad segja Hlif, tu att frabært folk i kringum tig, sjadu bara svarid ad ofan, tad getur ju ekki verid timaeydsla ad hafa svona folk i kringum sig. En eg get svarid ad tette blogg var eins og beint ur minum haus, er einmitt i svipadri kreppu nuna.
Sa ljosid vid enda ganganna (Rom) bara til ad uppgotva ad handan vid tad voru ny gong, enn lengri (Mastersritgerd!!!). Og svo tad sem kemur tar a eftir....er meira scary eftir tvi sem nær dregur
Hjartanlega sammála Díönu, eins og skrifað úr mínum haus!
Maður getur ekki stjórnað fortíð eða framtíð, maður verður bara kvíðinn af að hugsa um það, sem hindrar að maður geti lært, þannig spurningin er bara hvað get ég gert á þessu augnabliki :)
Takk fyrir commentið áðan, ég elska það þegar fólk er sammála manni hahahah ;)
Hlíf elskan mín, hvaða sjálfsefasemdir eru þetta?? hmmm mér finnst ég skynja einhvern leiða og óþolinmæði í þessari síðustu færslu frá þér:/ þú sem ert einmitt alltaf svo dugleg,jákvæð og klár.. auli er held ég það síðasta sem verður sagt um þig. En það er gott að fá útrás stundum fyrir bæði jákvæðar og neikvæðar pælingar á blogginu sínu, t.d. þegar maður á erfiða daga, ég tjái það oft sjálf. En mig langar að knúsa þig núna samt:)
Verðum að hittast á næstu dögum.
Kv.Sólveig Helga
P.S vonandi heitir næsta bloggfærslan þín, yndislegur léttleiki tilverunnar:D þegar allt verður svo auðvelt á ný.
Kv.
Vitur maður sagði mér að vitur maður (=Hreinn Benediktsson) hefði sagt sér að honum hefði fundist að nemendur á M.A.-stigi þyrftu ekki endilega að "leysa ráðgátuna miklu" (komast að einhverri (endanlegri?) niðurstöðu) í meistararitgerðum --- frekar ætti að gera slíkar kröfur til doktorsritgerða. (En hvenær hafa svo sem komið út doktorsritgerðir (í málfræði...) sem seinna hafa svo ekki reynst tóm vitleysa, svona síðar meir). ... en allavega, það (litla? mikla?) sem ég hef séð af ritgerðinni lítur interessant út, og svo er ég eiginlega viss um að stundirnar sem manni finnst maður ekki gera neitt af viti séu einmitt augnablikin sem maður fær góð hugboð um úrlausnir eða nýjar hliðar á málunum. // En ég er sammála, það væri frábært að vera búinn og skipta aðeins um gír.
Skrifa ummæli