fimmtudagur, ágúst 28, 2008

822.færsla.aflifun

Ég lifði þetta af! Gekk bara ágætlega held ég bara. Þó ég hafi ekki sagt sumt sem ég ætlaði að segja og svona.

Mér líður ekkert rosalega vel í augnablikinu. Þetta leystist upp í heljarinnar fyllerí í gær með rauðvínsþambi, söng og "ég hef aldrei". Fólk er frekar rislágt núna. Svo er það 4 tíma lestarferð og svo Strikið. Úff. En þetta var helvíti gaman.

3 ummæli:

Gyða Erlingsdóttir sagði...

til hamingju með aflifunina! Ég vissi að þú myndir standa þig :)

Nafnlaus sagði...

Oh, þú gerir vinnufamilíuna svo stolta. En við vissum auðvitað allan tímann að þú myndir rústa þessu. Og drekka fullt af rauðvíni og svona.

Njóttu striksins, dr

Nafnlaus sagði...

Töff!! Þú ert svo klár, auðvitað gekk þetta ágætlega :)