þriðjudagur, nóvember 04, 2008

848.færsla.

ohh. Ég er svo syfjuð, svo syfjuð, svo syfjuð.

Nenni ekki að gefa nemendum umsögn.

Og svo er ég í einhverju hóstakasti sem er frekar óþægilegt því að "hér vinna fræðimenn í opnu rými. Vinsamlega sýnið tillitssemi og talið í lágum hljóðum" - stendur á hurðinni.

Vona að Obama vinni í nótt.

Æ djöfs syfja og leti. Koma svo.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvenær á svo að mæta í afró stelpa?

Go Obama

dr

Regnhlif sagði...

þegar ég losna við kvefið.

Nafnlaus sagði...

Gobama :)

Er að reyna að klára þessa ritgerð einn tveir og bingó til að komast á kosningavöku í kvöld. Er samt ansi hrædd um að vera komin út á hálan ís þegar að ég er farin að troða Perez Hilton inn í ritgerð um lýðræði og stjórnmálaþáttöku. Annað hvort fæ ég stóran plús fyrir að sýna sjálfstæða hugsun eða ég verð stimpluð með froðu í stað heila :)

Hjálpi mér allir heilagir... tæp þrjú ár í viðbót í svona rugli... hvernig fóruð þið að þessu? :)