923.færsla. Some like it black
Stundum er ég svo orðóheppin. Í fyrradag var ég í Bláa lóninu ásamt Ásu og Isaac hinum spænska. Við vorum að ræða ópalskot og Isaac vildi vita hvernig hvíta ópalskotið væri á bragðið. Ég sagði honum að ég hefði aldrei smakkað þetta hvíta og sagði svo þessa frábæru setningu:
White doesn't interest me, only black!
Þeim fannst þetta eitthvað fyndið, eins og ég væri að lýsa yfir áhuga mínum á svörtum mönnum svo að ég sagði, í djóki, mjög perralega "yes - I only want black men" - og uppgötvaði auðvitað sekúndubroti seinna að eini svarti maðurinn í lóninu stóð rétt fyrir aftan mig.
Óheppin.
3 ummæli:
ÓJÁ!....
"psstt i saw a black man here"...
hahahahah
dr
múhahahahhaha
Skrifa ummæli