592.færsla. 2. janúar 2007
Gleðilegt nýtt ár. Takk fyrir það gamla. Ég meina það.
Já. Það er víst komið árið 2007. Því fylgir hin óumflýjanlega staðreynd: ég er að verða 26 ára gömul. Já, eftir 21 dag verð ég eldgömul. Þetta kemur mér jafn mikið á óvart og ykkur. Ég sem lít ekki út fyrir að vera eldri en 18 (neita að taka mark á því þó dyraverðir séu steinhættir að biðja mig um skilríki).
Ég er ennþá í væmna skapinu frá því um daginn. Þetta er alveg svakalegt sko. Táraðist yfir næstum hverri einustu frétt í annálnum á gamlárs... þetta var allt svo sorglegt eða fallegt eða fólk var svo hugrakkt eða... Þakka guði fyrir að allir hinir fóru á brennuna og ég sat ein yfir þessu. Mér er ekki vel við að flagga mínum væmnu hliðum. Nema náttúrulega á blogginu. Þar getur maður flaggað hverju því sem maður vill flagga.
Gamlárskvöld fær annars 9,5 í einkunn. Fokkings frábært. Eini gallinn var náttúrlega fólkið sem ég hefði viljað sjá en sá ekki. En fólkið sem ég sá var ógjó skemmtilegt... og við mamma sungum saman nú árið er liðið í símann, þannig að ég get ekki lækkað einkunnina niður fyrir 9,5.
P.s. Ég elska ykkur. Hver sem þið eruð sko. Af því að ég veit ekki hverjir lesa bloggið að jafnaði. Nema notla þeir sem ég veit að lesa bloggið að jafnaði. En hvort það eru einhverjir fleiri, það veit ég ekki. Er ekki með neinn teljara eða neitt svoleiðis. Þannig að leyndir aðdáendur (sem ég efast ekki um að séu margir) geta haldið áfram óhultir að lesa bloggið í leyni. Nema þeir vilji koma út úr skápnum og játa ást sína á mér. Það er líka velkomið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli