föstudagur, janúar 05, 2007

593.færsla. tannlæknir... og algjört sökksess

Ég skil ekki þessa áráttu hjá tannlæknum að spyrja mann spurninga um leið og þeir skella upp í mann flennistórum grænum segldúk og tveggja kílómetra plasthring undir varirnar á manni. “Hvað segirðu, hvað ert þú að læra?”
Bíddu, hvort viltu að ég sendi þér svarið með hugarorkunni eða leiki það með tánum?

Annars líkar mér vel við þennan tannlækni. Hann gaf mér afslátt af því að ég var svo dugleg. Eða, hann nefndi reyndar ekki að það væri vegna þess, en ég sé enga aðra ástæðu.

Engin ummæli: