þriðjudagur, febrúar 06, 2007

598.færsla. bólvað

Já sæl. Ég er komin aftur eftir langa vist í Noregi. Jæja, ekki svo langa. Það var bara veldig bra. Fannst bara úslo mjög huggleg borg. Reyndar, þá sá ég ekki mjög mikið af henni, en ég sá alla vega 4 H&M búðir, og það verður að teljast gott.

Jæja. Má ekki vera að þessu hangsi. Þarf að fara yfir nokkra tugi af verkefnum.

Annars er ég nær dauða en lífi sökum ægilegrar bólusóttar á höku. Ummál andlitsins hefur tvöfaldast í það minnsta og ég er sannfærð um að bólan sé að ná undirtökunum. Bölvað sértu bévítans bólu helvíti.

Engin ummæli: