miðvikudagur, febrúar 28, 2007

605. sju sví malad

Ég er veik. Vorkenning óskast takk. Ég hélt samt að ég væri bara slöpp og dreif mig upp í skóla til að Mímast, en mældi mig á leiðinni og kom í ljós að ég er með hita. Ofan í hóstann, horið og slappleikan þá hlýtur þetta að teljast sem veikindi. Ekki satt? Þess vegna ætla ég bara að vinna smá og fara svo upp í rúm. Hef samt engan tíma í hangs. En ég er svo slöpp.

Ljósi punkturinn í þessu öllu saman er að ég er á bíl!! Oh, hve unaðslegt það er að stíga út á köldum vetrarmorgni og þurfa ekki að ganga allra sinna ferða í frosti og byl, heldur geta ferðast um allt á þessu undursamlega farartæki. Ég elska bílinn.

Ég á nefninlega kærasta. Hahaha. Og með í kaupunum fylgja afnot af bíl. Mig hefur alltaf grunað það, en aldrei kynnst því fyrr, að svona kærastar gætu verið sniðugt fyrirbæri.

OMG.

Engin ummæli: