sunnudagur, mars 04, 2007

606.færsla. frústreruð námsmær

Mér finnst sum námskeiðin sem ég hef tekið í þessu námi mínu andsk. frústrerandi. Skil ekki námsefnið, skil ekki kennarann, hinar svokölluðu kennslubækur eru ófullnægjandi og ýtarefnið er annað hvort (eða bæði) eldgamalt eða á einhverju hrognamáli. Ógeðslega frústrerandi. Hvað á maður að gera?

Svo finnst mér líka ógeðslega frústrerandi að í þessari viku eigi ég eftir að :
-gera langt verkefni sem ég skil ekkert í fyrir þriðjudag
-fara yfir 40 verkefni í aðstoðarkennslu, líka fyrir þriðjudag
-gera 16 blaðsíðna verkefni fyrir fimmtudag
-sjá til þess að Mímir komist til umbrotsmanns, sem er erfiðara en það hljómar.

Í þokkabót er ég að jafna mig eftir veikindi og ekki orðin fullfrísk.

Mig vantar eitt stykki ofurmannlegan kraft, takk fyrir.

Engin ummæli: