612. færsla. ógeðslega skemmtilegt
Ég er að deyja þessa dagana úr löngun til þess að fara aftur sem svona fararstjóri eins og ég gerði síðasta sumar. (Fyrir þá (aula) sem lesa ekki bloggið mitt guðræknislega þá fór ég með hóp af krökkum í alþjóðlegar sumarbúðir í Hollandi þrjár vikur í fyrra... og það var ótrúlega skemmtilegt). Ég er búin að vera að hugsa geðveikt um þetta síðustu daga og núna var ég að fá póst um að það vanti enn einhverja fararstjóra fyrir sumarið. Það eru ógeðslega spennandi áfangastaðir í boði, en ég veit svosem ekki hverjir eru þegar uppteknir. En ef þið hafið áhuga... getið þið fengið nánari upplýsingar hjá mér eða á cisv.is
God hvað mig langar.
En ég held ég hafi ekki tíma.
En ji hvað mig langar.
Mæli með þessu!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli