miðvikudagur, júlí 25, 2007

660. færsla. draumur

Þegar ég verð stór langar mig að eiga eitt herbergi sem verður sérstakt föndurherbergi. Sumir myndu kalla svonalagað vinnustofu eða eitthvað slíkt en mig langar alls ekki í vinnustofu. Mig langar í föndurherbergi. Það væri herbergi með góðu skrifborði, góðu gólfplássi og fullt af hirslum. Það sem er samt mikilvægast að væri í herberginu væru alls konar skrifföng og föndurdót. Ég vil eiga allt. Til dæmis bara ef maður pælir í lími.... þá finnst mér næstum því bráðnauðsynlegt að eiga allt þetta:
-mjótt límband
-breitt límband
-límstifti (lítið)
-límstifti (stórt)
-svona blautt lím
-tonnatak (eða eitthvað slíkt).
Þar að auki eru nokkrir límlegir hlutir eins og
- bókaplast
-föndurlakk

Skiljiði hvað ég meina? Ég vil hafa heilt herbergi fyrir allt svona. Þá er ég ekki að tala um að ég vilji fylla herbergið af lími, ég tók þetta bara svona sem dæmi. Reyndar þegar ég hugsa um þetta, þá á ég nú reyndar næstum allar þessar tegundir af lími nú þegar, og ég sem bý bara í 6 fermetra herbergi.

Oh ég sé þetta alveg fyrir mér. Geta raðað gjafapappírnum og borðunum skipulega upp. Haft pláss fyrir saumavélina og pláss á gólfinu til að breiða almennilega úr efnum.

Samt föndra ég mj. lítið núna.
Sem minnir mig á hitt sem mig langar í: miklu meiri frítíma:)!

9 ummæli:

Fríða sagði...

hehe. Hverra manna ert þú væna mín? :)

Nafnlaus sagði...

Þetta líst mér vel á.

Regnhlif sagði...

alveg vissi ég að þið mynduð kommenta;)

Alma sagði...

Hvað með lím báðum megin? Mér finnst þú skilja það útundan. Er alveg sammála þessu, en ég myndi vijla að í þessu herbergi mætti alltaf vera drasl, svo að maður þyrfti ekki að ganga frá eftir sig að loknu góðu föndurkveldi.

Regnhlif sagði...

já Alma, lím báðum megin er mj. nauðsynlegt líka. Takk fyrir að minna mig á það.

Alveg sammála með draslið sko, fátt leiðinlegra en að ganga frá eftir góða föndurtörn. Þess vegna þarf líka að vera nóg gólfpláss svo maður geti bara ýtt draslinu aðeins til hliðar ef maður þarf að nota gólfið.

Fríða sagði...

Það er svona herbergi niðri í kjallara hjá mér, það er svo kúffult af ófrágengnu föndurdóti að maður kemst ekki þangað inn. Þá er nú einhvernveginn orðið lítið varið í þetta :) En samt. Ég allavega þarf ekki að láta mig langa í svona herbergi.

Svanhvít sagði...

Ohhh hvað ég er sammála þér, þetta er frumskilyrði þegar maður finnur sér íbúð. Vinnustofa hvað... föndurherbergi!!

Alma sagði...

Þú ert klukkuð!

Nafnlaus sagði...

Hey sniðug hugmynd hjá þér Hlíf, þetta föndurherbergi:) held bara að mig langi líka í svona herbergi í framtíðinni hehe
kv.Sólveig